útlendingar.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Það er gott að geta rætt þetta og fara vel yfir þessi mál. En mig langar bara að ítreka aftur það sem ég sagði áðan að nefndin fór auðvitað yfir þetta allt saman. Þetta er annað þingið sem við vinnum með þetta frumvarp. Þetta var afgreitt úr nefnd á síðasta þingi líka. Þetta var auðvitað eitt af stóru málunum, hvort það ætti yfirhöfuð að vera upptalning, hvort orðið ætti að vera „skylda“ en ekki „heimild“ og fleiri slík atriði sem við fórum yfir í nefndinni og það var bara nokkuð skýr sátt um það, enda kemur það fram í áliti 1. minni hluta að það eru ekki gerðar athugasemdir við þetta þar. Það er bara að menn vilja ganga lengra í þessu. Ég er kannski ekki með neina spurningu en mig langaði bara að árétta að nefndin er búin að fara mjög vel yfir þetta. Það stendur auðvitað ekkert á okkur að taka málið aftur inn ef það er ákvörðun þingsins að gera það. En það er búið að ræða þetta alveg fram og til baka með ýmsum sérfræðingum innan og utan stjórnsýslunnar og þess vegna varð niðurstaðan þetta orðalag með þessari breytingu sem meiri hlutinn leggur til í sinni tillögu.