útlendingar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar. Ég sit ekki í hv. allsherjar- og menntamálanefnd þannig að ég ætla kannski ekki að fara að munnhöggvast við hv. þingmann um það hvað hefur farið fram á fundum nefndarinnar. Niðurstaðan er a.m.k. sú, sem við Sjálfstæðismenn getum ekki fellt okkur við, að tillagan gengur að okkar mati ekki nægilega langt. Ég nefni aftur að mér finnst stóra málið ekki vera útfærslan, mér finnst stóra málið vera m.a. þetta orðalag varðandi ítrekuð brot. Mér finnst það ekki ganga nógu langt, okkur finnst það ekki. Síðan varðandi skylduna, bara svo dæmi séu tekin.
Svo nefndi ég reyndar eitt dæmi til viðbótar í ræðu minni áðan, sem er þetta sem hefur verið til umfjöllunar, m.a. í íslenskum fjölmiðlum, um afturköllun verndar þegar kemur að einhverju sumarfrísskrepperíi handhafa alþjóðlegrar verndar. Ég þekki ekki heldur hvort það hafi komið til sérstakrar umfjöllunar í nefndinni nú þegar en það liggur fyrir þingmál frá mér þess efnis. Þannig að mér finnst það hljóma vel að nefndin taki þetta til gagngerrar endurskoðunar, m.a. með tilliti til þeirrar umræðu sem hefur farið fram í þingsal og fleiri hv. þingmönnum hefur þá gefist kostur á að taka þátt í. Mér finnst það bara hljóma eins og gott plan.