157. löggjafarþing — 64. fundur,  29. jan. 2026.

útlendingar.

112. mál
[13:46]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M):

Virðulegur forseti. Við ræðum hérna útlendingamál ríkisstjórnarinnar. Það gladdi mig þegar þetta mál kom fram vegna þess að það hefur verið á brattann að sækja síðustu ár að reyna að ná einhverjum framförum þegar kemur að þessum málum, þ.e. ná stjórn á málaflokknum. Það sem hins vegar veldur mér miklum áhyggjum og ákveðnum vonbrigðum er að þetta frumvarp virðist til komið vegna þess að risaeðlan Evrópusambandið fór að setja Íslandi mörk. Þá fyrst vaknaði ríkisstjórnin, af því að Evrópusambandið lætur í sér heyra. Þannig að von mín um að þetta væri bara fyrsta frumvarp af mörgum varð fljótt úti. Af hverju? Vegna þess að ég hef ekki nokkra trú á því að þessi ríkisstjórn gangi lengra en Evrópusambandið vill. Allt sem við gerum hér hefur snúist um að koma okkur inn í Evrópusambandið, sérstaklega frá þingmönnum Viðreisnar. Engu að síður er þetta frumvarp til bóta.

Ég vil hins vegar vekja athygli á Evrópusambandsvinklinum vegna þess að við þurfum að ganga lengra og hér kom breytingartillaga frá hv. þm. Brynjari Níelssyni sem manni finnst svo sjálfsagt að verði samþykkt en ég óttast að verði ekki samþykkt af því að hún gengur lengra en Evrópusambandið ætlast til að við göngum. Hér var hamagangur í gær út af breytingartillögunni. Í raun og veru snýr aðalatriðið, eða eitt stórt atriði í breytingartillögunni, að því að það verði tekið út orðið ítrekað, þannig að hægt sé að vísa fólki úr landi sem fremur brot, alvarleg brot, án þess að brotin þurfi að vera ítrekuð. Þetta finnst manni alveg sjálfsagt. Ég hef ekki hugmynd um hvar hv. þingmenn meiri hlutans standa í þessu máli og ef þeir ætla að samþykkja þessa breytingartillögu væri það fyrsta breytingartillaga sem meiri hlutinn hefur samþykkt frá minni hlutanum. Ég vonast til að það gerist. Nú segir hv. þingmaður hér í hliðarsal að það sé ekki rétt. Ég er reyndar forvitin um hvaða breytingartillaga það var, en ef það er þá einhver meiri von á því að þetta verði samþykkt þá gleður það mig.

Mig langar aðeins að fara yfir nokkra hluti þessa frumvarps. Til þess að gera það þá held ég að við verðum aðeins að ræða útlendingamálin heildstætt. Af hverju finnst mér að þurfi að ganga lengra? Af hverju er ég að ræða þetta frumvarp, frumvarp sem ég er sammála? Nokkrir þingmenn meiri hlutans hafa verið að benda á að við séum farin að ræða eitthvað meira en frumvarpið. Já, við erum að ræða meira af því við viljum að þetta frumvarp taki breytingum í þinglegri meðferð þannig að það gangi lengra en það lítur út fyrir núna. Ég vona að í nefndinni verði tekið tillit til breytingartillagna og þeirra ræðna og athugasemda sem komu fram í þingsal. Af hverju? Jú, af því að útlendingamálin snúast í raun og veru ekki um útlendinga per se. Þau snúast um fyrst og fremst velferðarkerfin okkar, snúast um heilbrigðiskerfi, menntakerfi, velferðarkerfi, kerfi sem við höfum byggt upp í áratugi. Það hefur verið samstaða um þessi kerfi þvert á flokka. Við viljum grípa þá verst settu. Við viljum hjálpa fólki þegar þörf er á en við getum ekki hjálpað öllum heiminum, eins og hefur oft verið sagt í þessari pontu og víða um heim. Opin landamæri og velferðarkerfi fara ekki saman. Það á við á Íslandi líka.

En það sem við þurfum að átta okkur á líka er að við höfum ekki hugmynd um raunverulegan kostnað við málaflokkinn og því miður hefur þessi ríkisstjórn sem nú situr ekki breytt því og náð utan um kostnaðinn við málaflokkinn. Ég spurði hæstv. heilbrigðisráðherra hver kostnaðurinn væri í heilbrigðiskerfinu. Kerfið er þannig uppbyggt að það er ekki nokkur möguleiki að ná út úr því hvað íslenskir skattgreiðendur eru að greiða fyrir hælisleitendakerfið á Íslandi. Af hverju? Það er flokkunin sem er bara sjúkratryggðir og ósjúkratryggðir og ef þú ert hælisleitandi eða kominn með vernd þá ertu orðinn sjúkratryggður. Þar með er þetta bara hluti af hítinni og ég leyfi mér að halda því fram að þetta sé mögulega með þeim hætti til þess að fela kostnaðinn, til þess að það sé erfiðara að átta sig á raunverulegum kostnaði, vegna þess að þannig var lenskan síðustu ár að ef við ræddum þessi mál þá vorum við vond, rasistar eða annað álíka. Ef staðreyndin væri uppi á borðum þá hefði kannski verið erfiðara að halda því fram.

Engu að síður hafa nú komið svör við einhverjum fyrirspurnum sem vekur líka spurningu um heiðarleikann í stjórnsýslunni, að Landspítalinn sjálfur virðist geta tekið út alls konar upplýsingar, ég hef ekki getað fengið þær, og sagt þær ekki vera til. Það er eitthvað sem klárlega þarf að skoða. Einnig hefur verið haldið fram að vandamálið sé að minnka, að það hafi minnkað frá því sem mest var að einhverju leyti en þá er ekki tekið tillit til þess að það er aukning á síðustu sex mánuðum í umsóknum um vernd á Íslandi. Það er mikil aukning í umsóknum um fjölskyldusameiningar. Stabbinn sem má segja að við höfum ekki náð að komast yfir í þjónustu, þjónustuskorturinn, er orðinn svo mikill að það er að byrja að skila sér núna í auknum kostnaði, til að mynda hefur kostnaður við túlkaþjónustu aldrei verið hærri en árið 2025 og hann stefnir í að verða enn hærri árið 2026. Þannig að kostnaðurinn við málaflokkinn er ekki að minnka heldur þvert á móti er hann að aukast. Hann mun aukast ef við grípum ekki nánar og betur inn í.

Menntakerfið. Hingað koma börn sem hafa kannski aldrei verið í skóla, kunna kannski ekki ensku, alls ekki íslensku. Hvað gerum við? Hendum þeim beint inn í íslenskt skólakerfi, til hagsbóta fyrir hvern? Vissulega er gott að einangrast ekki, það er enginn að tala um það. Það þarf auðvitað að vera skóli sem tekur á móti þeim grunnkunnáttu í íslensku, athugar hvar þau eru stödd, hjálpar þeim á þann stað að þau geti verið með jafnöldrum sínum inni í skólakerfinu, af því að hitt er óboðlegt fyrir einstaklingana sem koma, einstaklingana sem eru fyrir í skólanum, kennarana og samfélagið allt sem borgar mikið meira fyrir þetta heldur en þyrfti ef þetta væri í einhverri reglu eða væri einhver stjórn á málaflokknum. Svo er það velferðarkerfið. Atvinnuleysistölur eru þannig að 40% þeirra sem eru á atvinnuleysisskrá eru Íslendingar og 60% útlendingar.

Nú er ég að tala um málaflokkinn á víðu sviði en það hefur meira að segja pirrað mig að það er oft ruglað saman verndarkerfinu og þeim sem koma hingað til að vinna, en við þurfum að ná utan um málaflokkinn heildstætt. Misnotkun í kerfunum á ekki að vera feimnismál. Það er gömul saga og ný að fólk mun misnota góðmennsku annarra. Þannig er það bara. Við þurfum ekki að vera einföld, við þurfum ekki að vera barnaleg og við sem lifum ekki í einhverjum hliðarveruleika heyrum sögurnar. Ég get tekið dæmi. Atvinnurekendur eru margir hverjir komnir í stórkostleg vandræði með það, sem hafa verið í vandræðum með að fá fólk, að þeir sem vilja hætta fara fram á að þeim verði sagt upp til að fá meiri bætur. Atvinnurekandi vill ekki segja viðkomandi upp, hann vill það ekki. Hann vantar fólk. Vvið þurfum að reyna að gera greinarmun á misnotkun á kerfinu og þeim sem eru komnir hingað og vilja aðlagast okkur, taka þátt í samfélaginu og vera þegnar sem eru bara að göfga samfélagið.

Hverjir eru harðastir þegar kemur að útlendingamálum? Í mínum huga eru það útlendingar á Íslandi sem lenda kannski verst í því, eru settir undir sama hatt og þeir sem koma hingað til að misnota kerfið, fólk sem hefur komið hér og verið hér kannski áratugum saman eða nokkur ár, skiptir ekki máli, er komið til að vinna og taka þátt. Það eru einstaklingarnir sem finnst við kannski taka allt of léttvægt á málum, þeir sem eru harðastir í því. Við þurfum að taka harðar á málum af því að samstaðan þarf að halda. Samstaðan brestur, vilji til að greiða skatta brestur. Svört starfsemi eykst ef samstaða brestur. Það er bara staðreynd. Það er staðreynd, ekki bara á Íslandi heldur um allan heim.

Frumvarpið er betra en ekkert. Það snýr að því að afturkalla heimild til alþjóðlegrar verndar, í raun og veru mál sem er með ólíkindum að sé ekki komið fram fyrr. Það er loksins komið, en viðkomandi þarf að hafa verið dæmdur fyrir ítrekuð afbrot og hafa hlotið endanlegan dóm fyrir alvarlegt afbrot og vera af þeim sökum hættulegur samfélaginu. Ég heyrði sagt í umræðunni í gær, held ég, að um sé að ræða mögulega tíu einstaklinga á ári sem þetta frumvarp nær yfir. Tíu einstaklingar sem væru að brjóta af sér og er vísað brott, það skiptir vissulega máli fyrir þjóðfélagið. Það munar miklu. En þetta er, eins og ég held að allir Íslendingar séu búnir að átta sig á, dropi í hafið í því sem þarf að gera. Við erum eyja í Norður-Atlantshafi sem þarf að vera með séríslenskar reglur sem eru ekki seglar, vera með séríslenskar reglur sem ganga lengra en flestir aðrir af því að við getum gert það. Við erum ekki hluti af Evrópusambandinu. Við erum sjálfstæð þjóð. Við vissulega virðum okkar skuldbindingar og samninga. En hvað gerðist fyrir einu ári, tveimur, þremur? Þá var sagt að við gætum ekki gert neitt út af þessum skuldbindingum. Nú eru öll löndin í kringum okkur búin að gera meira en við.

Ég tek því undir með þeim sem hafa sagt að við þurfum ný útlendingalög. Við þurfum að afnema íslenskar sérreglur sem eru til að draga fólk að, draga fólk að til að misnota kerfin. En endilega að nota séríslenskar reglur til þess að vera ekki að hvetja fólk til að koma hingað, fólk sem á kannski aldrei rétt á vernd.

Mig langar, með leyfi forseta, að detta aðeins inn í frumvarpið og lesa hérna smá part úr greinargerðinni, 2. kafla greinargerðarinnar sem heitir Tilefni og nauðsyn lagasetningar: Hvert er tilefni og nauðsyn þessarar lagasetningar að mati ríkisstjórnarinnar að mati hæstv. dómsmálaráðherra? Hér kemur það, með leyfi forseta:

„Ísland er eina Norðurlandaþjóðin sem heimilar ekki afturköllun alþjóðlegrar verndar þegar viðkomandi hefur framið alvarlegt afbrot eða telst ógn við öryggi ríkisins. Verndar- og fólksflutningssamkomulag Evrópusambandsins (e. Pact on Migration and Asylum) var samþykkt af ráðherraráði Evrópusambandsins hinn 14. maí 2024 og kemur til framkvæmda á sama tíma innan ríkja Evrópusambandsins og samstarfsríkja Schengen, eins og við á, í júní 2026.“

Sem sagt: Þetta er ástæðan fyrir því að loksins vaknaði Viðreisn, loksins vaknaði Samfylkingin, við það að þetta var ekki í lagi. Evrópusambandið, risaeðlan, vaknaði á undan þessum flokkum. Þetta er eina ástæðan fyrir því að við erum að ræða þetta útlendingafrumvarp. Það er það sem mér finnst sorglegt og það sem ég óttast vegna þess að ég í einfeldni minni trúði því að þessi ríkisstjórn væri vöknuð þegar kemur að málefnum hælisleitenda, flóttamanna og málefnum útlendinga almennt. Það er augljóslega ekki staðan. Tilefni og nauðsyn lagasetningarinnar er Evrópusambandið, reglur frá Evrópusambandinu.

Svo kemur einnig fram, sem er reyndar mjög gott. Ég ætla að fá að lesa aftur, með leyfi forseta:

„Þá er í frumvarpinu felld brott regla 2. mgr. 74. gr. laganna þar sem heimiluð er veiting dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða hafi útlendingur ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan lögbundinna tímamarka eftir að hann sótti um alþjóðlega vernd. Ísland eitt Norðurlandaþjóða heimilar veitingu dvalarleyfis á slíkum grundvelli og er því um aðra séríslenska reglu að ræða.“

Það er náttúrlega algjörlega galið að þetta sé inni í frumvarpinu núna. Við erum hér með engin takmörk. Hér hefur Útlendingastofnun ekki undan og að fólk fái sjálfkrafa vernd ef tímafrestur rennur út sem við settum okkur sjálf. Auðvitað sögðu Evrópusambandið og Schengen: Heyrðu, við viljum þetta ekki, þið eruð eina landið orðið eftir. Við sem ætluðum að vera svo góð, setja okkur einhver tímamörk og svo bara fylltist allt og alls konar fólk með vernd af því að við réðum ekki við eitt eða neitt. Og eins og stendur hérna, með leyfi forseta:

„Hér á landi dvelur því talsverður fjöldi útlendinga sem eru ekki flóttamenn en hafa fengið dvalarleyfi á þeim eina grundvelli að málsmeðferð umsókna þeirra um alþjóðlega vernd fór fram yfir lögbundin tímamörk. Að framangreindu virtu er ljóst að það hefur reynst Íslandi gífurlega kostnaðarsamt að lagaumhverfið og framkvæmdin í málaflokknum hér á landi skeri sig frá nágrannaríkjum.“

Ég hugsa að nánast hver einasti Íslendingur hafi verið búinn að átta sig á þessu á undan, alla vega Viðreisn og Samfylkingin. En þau eru búin að átta sig á að þau þurfi að fylgja Evrópusambandinu. Það er alla vega bót þegar kemur þessu máli. Verst fyrir okkur er að þau eru sennilega ekki tilbúin að ganga lengra. Við skulum þó ekki útiloka neitt og vonum að þau séu tilbúin að ganga lengra en pakki Evrópusambandsins í þessu máli því hann er ekki mjög spennandi fyrir Ísland. Vissulega er hann að koma okkur að góðu núna en ef við ætluðum bara að fara eftir honum heilt yfir þá verður Ísland ekki samt eftir nokkur ár.

Hér kemur líka fram, með leyfi forseta:

„að Útlendingastofnun og kærunefnd útlendingamála [ráði] ekki við þennan gríðarlega fjölda umsókna og þótt ráðuneytið hafi brugðist við með fjölgun starfsmanna bæði hjá Útlendingastofnun og kærunefnd útlendingamála er málahalinn orðinn slíkur að erfitt hefur reynst að vinna hann niður.“

Það hefur valdið því að fjöldi mála hefur fallið á tíma, eins og við ræddum um áðan. Svo komum við að kafla 3, um meginefni frumvarpsins. Ég hleyp hratt yfir 1. mgr., með leyfi forseta: „Þær breytingar sem eru lagðar til í frumvarpinu eru liður í áframhaldandi vinnu við að samræma lög um útlendinga við löggjöf í öðrum Evrópuríkjum …“ Gott og vel. Við erum alveg sér á parti en viljum við samræma? Viljum við ekki ganga lengra? Það væri forvitnilegt að heyra frá þingmönnum meiri hlutans, vilja þeir ganga lengra en Evrópusambandið? Ég vil klárlega ganga lengra. Miðflokkurinn vill ganga lengra og sennilega flestir nema mögulega, ég veit það ekki, hv. þingmenn meiri hlutans. Það væri líka forvitnilegt að heyra í Flokki fólksins hvar þau standa í þessu máli. Eru þau komin á Evrópuvagninn eða vilja þau t.d. styðja breytingartillögu hv. þm. Brynjars Níelssonar um að brotin þurfi ekki að vera ítrekuð til að megi vísa fólki úr landi. Risaeðlan virðist vöknuð á undan okkur? Ætlum við að bíða eftir næsta skrefi risaeðlunnar? Evrópusambandið, risaeðlan eins og ég kalla hana, hreyfir sig auðvitað ekki hratt. Eða ætlum við að hlaupa hraðar? Ég held að við verðum að hlaupa hraðar.

Svo er talað um nýjan dvalarleyfisflokk. Ég á nú eftir að kynna mér það aðeins betur. Ég ætla bara að vona, af því að tíminn er alveg að verða á þrotum hérna, að það sé búið að kanna hvort þessi nýi dvalarleyfisflokkur sem er verið að stofna í þessu frumvarpi sé nokkuð þess eðlis að það sé hægt að misnota hann til þess að vera hér með einhverjum kæruleiðum aftur og aftur. Ég treysti því að nefndin gangi úr skugga um það.

Auðvitað er bara vísað til ESB í 4. kafla en 3. kafli byrjar og endar á því að ræða að þetta sé nauðsynlegt því við þurfum að gera eins og Evrópusambandið.

Svo langar mig að enda á að tala aðeins um fjárhagsáhrifin, með leyfi forseta. Hér stendur: „Fjárhagsáhrif frumvarpsins eru talin hafa áhrif til lækkunar útgjalda vegna umsókna um alþjóðlega vernd.“ Virkilega gott. Og áfram, með leyfi forseta:

„Sparnaður við brottfall 2. mgr. 74. gr. er annars vegar vegna málsmeðferðar hjá Útlendingastofnun og kærunefnd útlendinga. Það eru því líkur á að kostnaður vegna málsmeðferðar og þjónustu við umsækjendur lækki um tugi milljóna á ári hverju með færri umsóknum.“

Tugi milljóna. Þetta sýnir bara að þessi ríkisstjórn hefur ekki hugmynd um hvað málaflokkurinn kostar. Það liggur fyrir að hann kostar tugi milljarða. Halda að þetta minnki um tugi milljóna — ekki er hægt að leggja alveg mat á það af því að það er svo mikil leynd yfir þessum kostnaði. En ég styð þetta frumvarp en við verðum að gera mikið betur.