157. löggjafarþing — 64. fundur,  29. jan. 2026.

útlendingar.

112. mál
[14:06]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Það hefur verið áhugavert að fylgjast með umræðunni í gær og í dag um þetta frumvarp sem hér um ræðir, breytingar á þessum hluta útlendingalaga, afturköllun alþjóðlegrar verndar. Ég get tekið undir það og hef margoft komið því á framfæri að það þurfi að skoða þessi mál öll í samhengi, skoða heildarsamhengi hlutanna.

Ég vil byrja á því að segja að það er einkar ánægjulegt að núverandi ríkisstjórn skuli hafa snarbreytt sinni afstöðu, alla vega hafa einstaklingar innan ríkisstjórnarinnar og innan stjórnarmeirihlutans snarbreytt um afstöðu til þessara mála á aðeins örfáum mánuðum og sérstaklega eftir að sest var í ráðherrastólana. Það má segja að skipt hafi verið um skoðun fyrir einhverjum mánuðum eða misserum í afstöðu til þess hvernig þessir hlutir væru að þróast, bara svona rétt eins og eftir því hvernig vindar blésu þá.

Mig langar til að rekja aðeins söguna í þessu. Það hafa aðrir komið inn á alla vega hluta hennar. Þróunin hefur verið slík að þeir sem hafa t.d. þurft að sinna einstaklingum sem hingað hafa leitað eftir vernd og svo margir hverjir fengið hér vernd og orðið hér íbúar, þeir hafa langmesta innsýn í það hvernig þetta er að virka og hvað er ekki að virka. Í byrjun hausts árið 2022, það eru þrjú og hálft ár síðan, þá var flaumur fólks hingað sem mestur, flestar umsóknir, þá neyddist ég til þess, og vakti athygli á því, að segja það upphátt, sem framkvæmdastjóri eins þess sveitarfélags sem tók á móti miklum fjölda fólks, að þetta gengi ekki lengur. Innviðirnir þyldu ekki álagið, kennarar væru að gefast upp, félagsþjónustan væri að gefast upp, þetta væri stefnulaust.

Þeir sem tóku til máls í aðdraganda þessa og á þessu tímabili, þeir sem voru eitthvað að andmæla því hvernig málin voru stödd, voru, eins og við þekkjum, úthrópaðir andstæðingar útlendinga og þar fram eftir götunum. En þegar þjóðin, almenningur og stjórnmálamenn fóru að sjá og finna hvers konar áhrif þetta væri að hafa þá fóru fleiri að tala þeim tóni og vekja athygli á þessu. Það voru einkum forsvarsmenn sveitarfélaganna, Reykjanesbæjar og Hafnarfjarðar, sem lýstu því fyrir stjórnvöldum að þetta væri ekki að ganga upp. Þá er sagt í dag: Já, en af hverju var ekki tekið á þessu fyrr? Sjálfstæðisflokkur og Framsókn sem voru í ríkisstjórn, af hverju tóku þeir ekki á þessu? Af hverju var ekki tekið á þessu fyrr? Mjög góð spurning. Hver var þingmeirihlutinn, hv. þingmenn, fyrir því að taka á þessum málum á þessum tíma?

Það var dapurt að horfa upp á — eftir að hafa komið fram og lýst þessu; að skólarnir væru að springa og kennararnir væru að gefast upp og þetta gengi ekki upp — það var dapurt að horfa upp á viðbrögðin þegar ráðherrar í ríkisstjórninni, sumir hverjir a.m.k., ekki innan allra samstarfsflokkanna, það er nokkuð ljóst, voru að reyna að berjast við það að gera breytingar. Jú, Sjálfstæðisflokkurinn var í samstarfi við VG sem var algjörlega mótfallinn því að horfa til þessara staðreynda og gera einhverjar breytingar. Ekki síður voru það stjórnarandstæðingar, sérstaklega Viðreisn og Samfylking, sem börðust gegn því, og fóru í lið með VG, að þarna yrði eitthvað tekið á málum. Það var ekki þingmeirihluti fyrir því á þessum tíma að taka á málum. Það vitum við öll og það hefur verið vitnað til ræðna einstakra þingmanna á þessu tímabili þar sem þeir fordæmdu í rauninni að verið væri að ræða þessi mál á þennan hátt. Það væri bara mannvonska. Hvar er mannúðin? Við eigum að opna landið meira. Þessar ræður eru til og margt þetta fólk situr enn á þingi, sumir hafa horfið af þeim vettvangi, en þetta var staðan. Það var óskaplega átakanlegt að horfa á þetta utan frá, hvernig þetta þróaðist, horfa á hvernig umræðan var á þingi og hvers konar mótbárur þeir fengu sem hér voru að reyna að stíga einhver skref til að ástandið mætti skána og við tækjum einhverja stjórn á málaflokknum. En það gerðist ekki.

Það er því ákaflega ánægjulegt að sömu þingmenn, sumir hverjir, séu nú búnir að snarbreyta um afstöðu og það á mjög stuttum tíma, sumir hverjir bara eftir að ráðherrasætin voru fengin. Það vill svo til, af því að ég er að tala hérna um sveitarfélögin Reykjanesbæ og Hafnarfjörð, og í því tilviki sem ég þekki í Hafnarfirði, að þá var það nú bara þannig að Útlendingastofnun tók á leigu hótel og gistiheimili víðs vegar um bæinn án samráðs við sveitarfélagið sjálft. Við nánast fréttum af því út á götu að það væri verið að leigja 100 herbergja hótel, 150 herbergja hótel, hér og þar um bæinn og þau yrðu fyllt af hælisleitendum og við vorum ekki spurð. En gjörið svo vel að redda þessu. Það var viðhorfið frá þáverandi hæstv. félagsmálaráðherra, sem kom úr röðum Vinstri grænna. Þið reddið þessu. Verið ekki svona vond þegar við stígum á stokk. Og lýsti því yfir að þetta væri ótækt.

Það er hægt að fagna því að vindar hafi blásið þannig. Eftir því sem fleiri stigu fram, eftir því sem kennarar komu fram og fleiri og fleiri og við fórum að finna það á okkar eigin kerfum, skólunum, að foreldrar annarra barna sáu hvað var að gerast inni í skólastofunni, höfðu skilning á kennurunum, þegar við sáum það á heilsugæslunni og heilbrigðisstofnunum hvað var að gerast, þá fóru menn að vakna. Það var svo ekki fyrr en vorið 2024 sem fyrstu almennilegu skrefin voru stigin í dómsmálaráðherratíð Guðrúnar Hafsteinsdóttur, skref sem hafa skipt miklu máli. En þá, þegar almenningur reis upp og sá hvað var að gerast, skiptu menn um skoðun, alla vega einhverjir, og sérstaklega eftir að þeir komust í ríkisstjórn.

Það er rétt sem komið hefur hér fram ítrekað að það er mjög erfitt að átta sig á því, og burt séð frá því eftir hvaða upplýsingum er kallað, að það hefur enginn, að því er virðist, heildaryfirsýn yfir það hvað þetta er að kosta samfélagið. En hvernig þessum málum hefur verið háttað og er háttað hefur verið að brjóta niður ýmis okkar kerfi sem við höfum verið sammála um að vilja hafa í lagi, skólana, velferðarkerfið og heilbrigðisþjónustuna. Við fengum upplýsingar um að gríðarlega stórt hlutfall fólks af erlendu bergi brotið væri komið inn í bótakerfið okkar og væri á endurhæfingarlífeyri og væri að þiggja lífeyrisgreiðslur. Þannig er það bara. En þetta er eitthvað sem við þurfum að taka á.

Þetta frumvarp sem við erum að ræða hérna sérstaklega núna er mjög gott skref. En það er svo sannarlega hægt að taka undir það með öðrum sem hafa stigið í þetta ræðupúlt núna að útlendingalögin þurfi að taka heildstætt til algjörrar endurskoðunar. Þessi málaflokkur er enn stefnulaus og það er mjög gott að á síðustu mánuðum, finnst manni, hefur umræðan og viðhorfið til málsins breyst. Útlendingamál eru í rauninni ekki bara útlendingamál. Við þurfum að gera þennan greinarmun á, eins og hér hefur margoft komið fram og við höfum margoft rætt, þeim sem hingað eru komnir til þess að leggja gott til samfélagsins, vilja aðlagast okkar góða samfélagi, vilja leggja af mörkum, vilja vinna hér og ala upp börnin sín og vilja vera góðir og gegnir borgarar — og við þurfum svo sannarlega á því að halda inni í okkar atvinnulíf og velferðarkerfi inn á heilbrigðisstofnanirnar og hvert sem litið er, þannig að við fögnum því. Við þurfum á því fólki að halda. En þeir sem eru hingað komnir einungis til að fara á bótakerfið okkar og misnota það með ýmsu móti. Ég tala nú ekki um þá sem hingað eru komnir til þess að brjóta af sér, eins og er verið að fjalla um í þessu frumvarpi.

Ég tek heils hugar undir þá breytingartillögu sem hv. þm. Brynjar Níelsson hefur lagt hér fram, að það eigi í rauninni að víkka út þessa heimild. Hér var verið að ræða hvort það gæti verið til trafala að telja upp hvers kyns brot um væri að ræða. Ég bara treysti nefndinni, hv. allsherjar- og menntamálanefnd, til að fara yfir það. Ég held að það sé ekki neinn ásetningur sem stendur til þess að þetta muni leiða til þrengingar, síður en svo, þannig að það er nú bara viðfangsefni nefndarinnar.

Hér er búið að vera að ræða fram og til baka hvað telst glæpur og mig langar þá aðeins til að nefna að í rauninni, að mínu mati, ætti að víkka þetta út enn frekar. Við höfum dæmi um það að fólk kemur hingað er kannski ekki að fremja stórkostlega glæpi gagnvart öðrum eða slíkt, en það kemur hingað á fölskum forsendum. Á því þurfum við líka að geta tekið. Maður veit um tilvik, og þótt þau séu ekki sem betur fer ekki mörg á hverju ári, þá eru samt tilvik þar sem fylgdarlaust ungmenni kemur, 17 ára, 18 ára eða 16–17 ára, og fær vernd. Skömmu síðar kemur stór hópur ættingja og fær vernd eða leyfi til að vera hérna í skjóli fjölskyldusameiningar. Síðan kemur í ljós skömmu síðar að viðkomandi ungmenni sem kom hingað 16–17 ára var tíu árum eldra og sagði líka rangt til um upprunaríki. Það eru engin úrræði fyrir hendi til að bregðast við þessu. Hvað eigum við að gera í þeim tilvikum þar sem einstaklingar hafa komið inn á fölskum forsendum, svikið sig hingað inn, logið sig hingað inn? Eigum við að láta það óátalið? Sem betur fer er ekki um mörg tilvik að ræða, eins og ég segi, en þau eru nógu mörg, því svo er fjölskyldan jafnvel í stórum hópum komin á eftir. Eigum við ekki líka að gera ráð fyrir því að það séu til einhverjar heimildir til að taka á þessu?

Ég held að við séum flest orðin sammála um, alla vega stærsti hluti samfélagsins, að það sé mikilvægt að fólk aðlagist þjóðfélaginu okkar, að það leggi sig fram um að aðlagast því, ég tala nú ekki um ef það fær vernd. Væntanlega er stærsti hlutinn sem vill gera það þó að nógu stór hluti ætli sér ekki að gera það. Hvernig eigum við að taka á því, t.d. þegar einstaklingur eða fjölskylda kemur og fær vernd — þá er ákveðin stuðningsáætlun sem fer í gang. Viðkomandi þurfa að sækja námskeið, mæta í viðtöl, leita að atvinnu og þar fram eftir götunum. En það eru allt of mörg dæmi þess að fólk neiti því, að það bara skelli hurðum og neiti því að taka þátt í því prógrammi sem þeim er uppálagt hafandi fengið vernd og það eru engin úrræði fyrir þá sem koma að þeirra málum eins og í félagsþjónustu sveitarfélaganna. Það eru engin úrræði til að kvarta undan þessu, fólk jafnvel bankar upp á heima hjá fólki og biður það um að koma á námskeiðið sem því var ætlað að koma á, sem var forsenda þess að fá verndina, að koma í viðtölin. En það ætlar sér ekki að aðlagast og skellir á.

Eigum við að skoða þetta? Eigum við að taka ákveðnar á þessu, að fólk þurfi sannarlega að fylgja eftir því sem það hefur gengist við í aðdraganda þess fá verndina? Við erum ekki að tala um glæpafólkið þarna, eins og hefur kannski mest verið til umræðu hérna núna. Við erum að tala um þá sem eru ekki að standa við það sem þeim er uppálagt. Þetta er ákveðinn hópur fólks sem er á þessum stað, sérstaklega fólk sem kemur frá mjög ólíkum menningarheimum miðað við okkar. Þeim finnst bara að það eigi ekki að skipta sér meira af þeim en þeir þiggja bæturnar. Þetta er oft fólk sem er með mjög stóran barnahóp og einangrar sig jafnvel. En þetta eru merki þess að þetta fólk ætlar ekki að aðlagast okkar samfélagi og mér finnst að við þurfum að skoða þetta í þessari vinnu.

Eigum við að gera ríkari kröfur? Eigum við að hafa einhverjar heimildir fyrir fólkið sem er að fylgjast með þeim í sveitarfélögunum sem er búið að vera að vinna með þessa einstaklinga frá því að þeir komu fyrst til landsins og vill að þeir uppfylli það sem þeir lofuðu? Þetta eru ákveðin svik og eitthvað sem fólk er ekki að standa við. Þetta eru ekki þessir hörðu og alvarlegu glæpir en þetta eru svik. Þau eru ekki að standa við það sem þau sögðust ætla að gera og þetta skiptir máli. Þarna eru oft mörg börn inni á heimilum og mikil félagsleg einangrun sem á sér stað. Það er kannski dálítið falið vandamál en það er nóg til af starfsfólki, eins og í sveitarfélögunum, sem vill nálgast þetta fólk, vill passa upp á það að ekki síst börnin komist í íþróttir og félagsstarf og aðlagist og kynnist öðrum börnum. En það er bara skellt á nefið á þeim og það hefur verið þrautin þyngri fyrir þessa starfsmenn að kvarta undan þessu við lögreglu eða aðra því það eru bara engar heimildir til að bregðast við. Hugsum aðeins út í þetta því þetta skiptir líka máli. — Tíminn minn er búinn þannig að ég læt þessu lokið í bili.