útlendingar.
Frú forseti. Við ræðum hér frumvarp um breytingu á lögum um útlendinga sem ætti auðvitað ekki að heita það heldur ætti heitið að vera miklu afmarkaðra. Þetta varðar þá sem sækja hér um alþjóðlega vernd en ekki útlendinga almennt, ekki þá sem koma hingað sem innflytjendur eða tímabundið til að vinna eða sem sérfræðingar frá öðrum ríkjum eða hvað sem það er. Öllu þessu hefur meira og minna verið ruglað saman á undanförnum misserum í þvílíkan graut og leiðindi að umræðan hér um þessi mál er því miður farin að taka mið af því sem við höfum séð í öðrum ríkjum, og það er óþarfi. Vonandi hef ég tíma til þess að koma inn á það í lok ræðu minnar en ég ætla að byrja á að tala um þetta tiltekna frumvarp sem fjallar fyrst og fremst um þá sem koma hingað og sækja um alþjóðlega vernd. Þetta frumvarp fjallar um enga aðra útlendinga.
Ef við drögum það saman er megintilgangurinn hér að herða reglur til að samræma íslenskt lagaumhverfi betur því sem gildir á hinum Norðurlöndunum. Því erum við í Framsókn samþykk og höfum alltaf verið. Við erum í öðru lagi að koma í veg fyrir að Ísland sé aðlaðandi, eins og það er kallað, fyrir fólk sem á ekki raunverulega rétt á vernd en kemur hingað samt til að sækja um hana vegna þess að kerfið er ekki nógu gott. Það er líka verið að koma í veg fyrir að landið sé aðlaðandi fyrir fólk sem hefur jafnvel framið alvarleg brot og við getum ekki tekið á því. Þessi löggjöf er að taka á því. Í þriðja lagi er verið að gera kerfið skilvirkara og draga úr kostnaði. Enn og aftur erum við í Framsókn algerlega sammála þessum þremur meginmarkmiðum og höfum alltaf verið.
Umræðan hér í þessum þingsal á liðnum árum hefur hins vegar verið þung. Við í Framsókn sátum í ríkisstjórn sem gat ekki klárað þetta mál fullkomlega vegna þess að einn flokkurinn var sannarlega að verja mjög hið mikla frelsi þeirra sem sækja hér um alþjóðlega vernd til að koma hingað inn og vera með séríslenskar reglur. En það var fleira sem gerði það að verkum að ekki var hægt að taka á málinu. Hér voru flokkar á þingi, t.d. Píratar, Samfylkingin og Viðreisn, sem einnig stóðu í vegi fyrir þessum breytingum. Það var með öðrum orðum varla þinglegur meiri hluti fyrir málinu. Þetta er gjörbreytt. Núna getum við tekið þessa umræðu og ég vildi svo gjarnan að hægt væri að taka hana eingöngu um þetta afmarkaða mál. Þetta er sem sagt kjarninn sem þetta frumvarp snýr að og þetta fjallar að öðru leyti ekki um neitt annað sem viðkemur útlendingum á Íslandi, svo að það sé sagt.
Við þurfum að átta okkur á því að til þess að þetta sé hægt þurfum við á hverjum tíma að uppfæra regluverk á Íslandi, alveg eins og verið er að gera á Norðurlöndunum. Ef við ætlum að hafa regluverkið með sambærilegum hætti verðum við að uppfæra það alltaf og stöðugt, ekki bara einu sinni. Þetta frumvarp kom fram, það fór ekki í samráð, það var ákvörðun ríkisstjórnarinnar, það stendur í greinargerðinni. Það kom hingað inn og svo tók ríkisstjórnin aðra stefnu um það hvaða mál hún vildi klára og kláraði ekki þetta mál. Einhverra hluta vegna lagði ríkisstjórnin ekki áherslu á að klára málið í haust og það var heldur ekki sett í samráð þá. Það er þess vegna sem ég held að við sitjum svolítið í þessari súpu núna, að vera að deila um það hvað er nákvæmlega rétt. Það hefði verið betra ef málið hefði farið í samráð. Það er almennt betra að fá fleiri sjónarmið hér inn; fá sjónarmið frá þeim sem vinna við þetta á hverjum degi. Í gær fengum við hv. þm. Brynjar Níelsson óvænt hingað inn sem varaþingmann. Hann hefur verið að vinna í lagaumhverfinu, bæði sem lögmaður og dómari. Hann kemur hér með tillögur sem okkur í Framsókn finnst á margan hátt mjög áhugaverðar og til að mynda betri en tillaga sem kom frá fulltrúa Miðflokksins. Ég held að það sé mjög mikilvægt í þessum málaflokki og í þessu máli að frumvarpið fari aftur til nefndarinnar og hún fari yfir það hvort þetta sé ekki hægt. Mér sýnist t.d. að umræðan sem var um það hvort það að afmarka með einhverjum hætti — sem sannarlega er gert í breytingartillögu hv. þingmanns. Í b-lið 2. liðar í breytingartillögu hans þar sem talað er um að við c-lið bætist ný málsgrein, ég ætla ekki að fara yfir hana, en mér sýnist að að þar sé verið að taka á þessu almenna. Fyrir utan það sem er sértækt, sem fjallað er um, þá geti aðrar ástæður orðið til þess að taka á þessu; mér sýnist það. Ég hvet nefndina alla vega til að fara með málið þarna inn til að fjalla um þetta aftur. Enn og aftur erum við að fjalla um fólk sem kemur hingað til lands til að sækja um alþjóðlega vernd en á einhverra hluta vegna ekki rétt á því.
Varðandi hina sem koma hingað til lands þá verðum við að átta okkur á því að við ætlum ekki að tala svona um það fólk, og hvað þá allt annað fólk, eins og hér séu allir glæpamenn og það þurfi stöðugt að vera að tala um að hefta för fólks og ég veit ekki hvað og hvað. Það er svo mikilvægt að við áttum okkur á því hvað hefur gerst á liðnum árum. Ég held að það sé augljóst, og ég hef sagt það margoft áður, að á árunum 2022 og 2023 var stjórnleysi í þessum málaflokki. Ekki var hægt að setja reglur hér í þinginu, það var einhvern veginn ekki hægt að koma neinu fram. Á sama tíma komu hér inn stórir hópar af fólki frá Venesúela sem áttu ekki rétt í þessu alþjóðlega verndarkerfi. Á sama tíma tókum við á móti þúsundum frá Úkraínu og þetta kerfi var stjórnlaust. Svo náði ríkisstjórnin sem þá var samstöðu, að mig minnir í upphafi árs 2024, í 23 liðum eða punktum, um breytingar á lögum sem fóru síðan í gegn um vorið. Bara sú breyting hefur gjörbreytt ástandinu. Það er þvæla hjá þeim sem koma hingað upp og halda því fram að það hafi ekki gjörbreyst. Það hefur gjörbreyst. En í þessum punktum stóð hins vegar að það þyrfti að halda áfram að uppfæra lögin í takt við það sem væri að gerast á Norðurlöndunum. Það er verið að gera það hér með þessu, á þessum afmarkaða hluta. Þetta snýst að einhverju leyti um það — ef við förum aðeins ofan í hverjir geta ekki fengið alþjóðlega vernd þá var gamla reglan sú að fólk gat fengið svokallaða viðbótarvernd ef það átti dauðarefsingu og pyndingar á hættu í heimalandi sínu en ekki ef það var talið hættulegt öryggi ríkisins, hafði framið alvarleg brot eða flúið til að koma sér undan refsingu sínu heimalandi. En þessar reglur náðu ekki til þeirra sem sóttu um flóttamannavernd, sem var hinn hlutinn, því að þetta er dálítið flókið. Þar gátu menn fengið alþjóðlega vernd, jafnvel þó að þeir væru taldir hættulegir öryggi ríkisins, sem er ekki gott. Nýja reglan, samanber nefndarálitið: Ef viðkomandi er talinn hættulegur öryggi Íslands — og þar eru ýmis viðmið, dæmdur fyrir mjög alvarleg brot eða ítrekuð eða ógnar öryggi eða allsherjarreglu — þá getur hann ekki fengið neina alþjóðlega vernd, hvorki flóttamannavernd né viðbótarvernd. Það er með öðrum orðum hægt að afneita öllu. Hins vegar tekur nefndin einhvers konar mildari útgáfu frá frumvarpinu til greina sem ég held að þurfi að skoða, sérstaklega í ljósi þessarar umræðu sem hér hefur verið um þetta mál og vilja þingsins til að hafa þetta nægilega skýrt. Þegar kemur að því að fólk sem á annaðhvort ekki rétt á að koma hingað og sækja um alþjóðlega vernd eða brýtur af sér eftir að það hefur fengið hana, brýtur það samkomulag sem það gerði þegar það skrifaði upp á að það væri að fá alþjóðlega vernd og stuðning frá Íslandi, þá þarf að vera möguleiki að segja: Heyrðu, við getum líka sagt samningnum upp, ekki bara þið með ykkar hegðun. Síðan er aðeins fjallað um það hérna líka hvernig er hægt að kalla alþjóðlega vernd til baka. Mér finnst líka mjög jákvætt að verið sé að henda út íslenska ákvæðinu um að ef afgreiðsla umsóknar um alþjóðlega vernd tekur óeðlilegan tíma þá geti menn fengið dvalarleyfi. Þetta er auðvitað fráleit aðferðafræði. Ef menn falla á tíma fá þeir bara reglu en þessi regla bara dettur út og það er líka meiri mannúð í henni ef menn leggja sig fram um að afgreiða mál sem hraðast en láta menn ekki bíða hér mánuðum og jafnvel árum saman. Síðan er tiltekinn hópur sem er skilgreindur undir heitinu umborin dvöl, sem er auðvitað mjög sérstakt heiti. Ég hef skilning á því hvað menn eru að reyna að finna þarna út en það verður að segjast alveg eins og er að þetta er mjög sérkennilegt.
Ég ætla að enda umfjöllun um þetta frumvarp á því að taka þetta aðeins saman. Eins og ég skil þetta, og við í Framsókn, og við erum sammála því og við styðjum þetta frumvarp að því leyti, þá verður kerfið eitthvað strangara á Íslandi. Það verður í fyrsta lagi erfiðara fyrir suma að fá alþjóðlega vernd, sérstaklega ef þeir eru taldir hættulegir eða hafa framið alvarleg brot. Það verður auðveldara að taka vernd af fólki sem hefur fengið hana en svíkur samninginn um að vera hér á Íslandi og haga sér vel, fremur sem sagt afbrot. Það er ekki lengur hægt að fá vernd eingöngu vegna tafa í kerfinu sem er gott og þeir sem fá dvöl en ekki vernd fá minni réttindi, það er líka skynsamlegt. Þessar breytingar miða að því að minnka fjölda þeirra sem fá vernd eða dvalarleyfi á Íslandi eða takmarka réttindi þeirra sem fá leyfi, sérstaklega ef þeir eru taldir hættulegir eða hafa framið brot. Við í Framsókn, eins og ég hef farið hérna yfir, hefðum talið skynsamlegra að ganga aðeins lengra og þess vegna viljum við að málið fari aftur til nefndarinnar svo að þessar breytingartillögur sem þarna er fjallað um fái alvarlega og djúpa umfjöllun um hvort ekki sé skynsamlegra að fara þá þegar þessa leið til þess að þetta sé einfaldlega bara skýrara og við þurfum ekki strax að fara að taka þessi lög upp. Þá held ég að við séum komin á ágætan stað með þennan hluta málsins.
Mig langar síðan að nota hér nokkur orð til þess að fjalla um útlendinga almennt af því að það gera menn hér í þessum ræðustól í þessu máli þó að málið fjalli ekki um það. Þetta frumvarp fjallar bara um það hvernig við takmörkum eða getum tekið vernd af þeim sem brjóta af sér. Gríðarlegur fjöldi af fólki hefur komið hingað til lands á liðnum árum og misserum og margt af því hefur göfgað land okkar og líf mjög mikið, tekið þátt í því að standa fyrir miklum hagvexti. Ég verð að viðurkenna að ég skil ekki orðræðu hæstv. forsætisráðherra og ríkisstjórnar sem talar nú um að það sé enginn hagvöxtur á mann og þetta sé bara innflutningur á fólki og þetta sé allt blöff. Ég bara veit, þegar ég horfi yfir landið allt, að úti á landi hefur það verið alger forsenda fyrir uppbyggingunni sem þar hefur orðið að þangað hefur komið fólk til þess að standa fyrir þeirri vinnu og til að búa til eftirspurn eftir þeirri þjónustu sem þar er veitt. Ég veit ekki hvað þessi ríkisstjórn er að tala um nema þetta sé enn eitt dæmið um að hún ætli að tala niður landsbyggðina, vera á móti þeirri uppbyggingu sem er úti á landi. Ég bara skil þetta ekki, ég skal bara viðurkenna það. Ekki frekar en að ég skyldi hagfræðikúrs hæstv. fjármálaráðherra í morgun þegar hann var að útskýra að hækkun verðbólgu í 5,2% væri ekki ríkisstjórninni að kenna þó að Hagstofan segði að 0,5 af 0,7% hækkun væri vegna ákvarðana ríkisstjórnarinnar. Ég veit það ekki, kannski þarf ég bara að fá viðbótarkúrs. En hingað hefur líka komið fullt af fólki í leit að alþjóðlegri vernd og við vitum að þetta kerfi er misnotað og þess vegna þarf regluverkið að vera skynsamlegt og fullkomið. Við vitum líka að það væri betra ef við gætum hjálpað fólki heima hjá sér þar sem áföllin eru í gangi svo að það þurfi ekki að fara á flótta. Við vitum líka að það væri betra fyrir okkur að taka á móti kvótaflóttamönnum sem Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna væri búin að velja; það væru þá þeir sem væru í mestri neyð en ekki þeir sem hafa efni á því að kaupa sér flugmiða og fara til Íslands. Við vitum þetta allt. Þess vegna verðum við að takmarka þessar leiðir fyrir þá sem geta farið hér í gegn við alþjóðlega vernd. Það er mjög mikilvægt. Þegar menn byrja síðan að tala niður alla útlendinga og senda þau skilaboð frá Alþingi Íslendinga og frá stjórnmálaöflum á Íslandi að þeir sé séu í raun ekki velkomnir — við höfum upplifað það að fólki sem hefur starfað hér áratugum saman og á börn hér er allt í einu núna farið að líða eins og það sé ekki velkomið eða er að verða fyrir áreiti — þá finnst mér nóg komið. Þá finnst mér að við þurfum að fara að standa upp og segja: Aðskiljum þessa umræðu. Tölum um hlutina eins og þeir eru. Þegar fólk segir: Við ætlum að loka á alla þá sem koma utan EES, hafa menn þá ekki skoðað hvaðan þeir sérfræðingar koma sem halda uppi tilteknum kerfum? Hafa menn ekki skoðað t.d. hvaða tekjur — af því að hér eru menn alltaf að tala um að allir séu á bótum. Ég ætla að halda því fram, af því að ég veit það, að langsamlega flestir frá öllum löndum sem hafa komið til lands skili meiri tekjum í ríkissjóð en viðkomandi land fær og í mörgum tilvikum er þessi skali þannig að Ísland er ekki eitt af fimm eða tíu efstu þjóðernunum sem skila meiru í ríkissjóð en þau fá út úr þeim. Það eru sumir sem skila miklu meiri tekjum í ríkissjóð frá þeim löndum og sumt af því fólki er einmitt utan EES og er það fólk sem gerir það að verkum að við erum að fara að byggja hér upp samkeppnishæfar atvinnugreinar til framtíðar. Ég skil ekki þessa umræðu, ég skil hana ekki. Þegar fólk kemur til landsins þurfum við hins vegar að gera því kleift að aðlagast íslensku samfélagi. Við þurfum að gera allt sem við getum til að kenna því íslensku. Við þurfum líka að gera kröfu á þetta fólk að það tali íslensku, gera þá kröfu á vinnuveitendur að fólk sem er í þjónustustörfunum eða hér og þar læri íslensku. En við verðum líka að gera fólki það kleift.
Í stóru myndinni er þetta svona: Hingað kemur fólk af ýmsum ástæðum. Það sem kemur hingað til að vinna þurfum við tímabundið — það þarf að vera fullkomlega eðlilegt að koma í veg fyrir félagsleg undirboð, gera allt sem við mögulega getum til þess að allt sé sanngjarnt og eðlilegt. Það er ekki hægt að ætlast til þess að það fólk fari að læra íslensku, fólk sem er að taka einhvern kúf af einhverri vinnu. Síðan kemur hingað fólk sem sest að og við þurfum að taka utan um það fólk. Við þurfum að gera því kleift að verða hluti af íslensku samfélagi. Margir þeirra verða það, margir þeirra eignast börn og setjast hér að til lengri tíma. Þeim mun mikilvægara er að þeir læri íslensku og komist þannig inn í íslenskt samfélag, og við verðum að leggja áherslu á að börnin geti tekið þátt í íþrótta- og æskulýðsstarfi.
Enn annar hópur kemur með sérstöku leyfi fyrir fólk utan EES sem einhvers konar sérfræðingar. Margir vinna til að mynda í lyfjaiðnaðinum, mjög margir, eða tölvuleikjageiranum. Þetta eru sérfræðingar sem eru hámenntaðir frá löndum utan EES með umtalsvert háar tekjur og borga verulega skatta til ríkisins. Sumt af því fólki sest líka að og það sama gildir þar. Það fólk þarf að eiga möguleika á að komast inn í íslenskt samfélag og við verðum að gera kröfur bæði á það og á okkur og hjálpa til við að það takist.
Síðan er hópur sem sækir um alþjóðlega vernd. Það regluverk verðum við að hafa eins skýrt og hafa það svipað og er á Norðurlöndunum en við vitum að það er ekki ein regla þar heldur eru löndin mismunandi. En við verðum að uppfæra okkar regluverk reglulega til að verða ekki aðlaðandi, til þess að vera ekki misnotuð af þeim alþjóðlegu glæpasamtökum sem eru í mansali. Þess vegna verðum við líka að skoða fleira en bara löggjöf um fólk. Ég var hér með þingsályktunartillögu í gær um að herða tökin á landamærunum, í samspili tollgæslunnar, lögreglunnar, Fjármálaeftirlitsins og eftir atvikum annarra innlendra eftirlitsstofnana, þannig að við getum raunverulega tekið á því sem er að fara yfir landamærin. Það er fleira en fólk. Það er fleira en fíkniefni og það er fleira en svindl og stundum er þetta allt saman í bland. Þess vegna verðum við á öllum vígstöðvum að herða þessi tök. Við getum það. Við erum eyja. Þetta höfum við í Framsókn viljað gera, þetta erum við í Framsókn sammála um að þurfi að gera. Og varðandi þetta tiltekna mál þá kalla ég eftir því að nefndin taki það til skoðunar að uppfæra breytingartillögur sínar til að gera það betur úr garði. En við teljum að þetta mál sé í áttina og styðjum það sem slíkt.