157. löggjafarþing — 64. fundur,  29. jan. 2026.

útlendingar.

112. mál
[14:46]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta allsh.- og menntmn. (Snorri Másson) (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurði Inga Jóhannssyni fyrir umfjöllun um málið. Það eru spurningar sem vakna. Ég hefði áhuga á að vita að hvaða marki hv. þingmaður telur þessa tillögu hv. þingmanna Sjálfstæðisflokksins betri en okkar tillögu í Miðflokknum. Miðflokkur og Sjálfstæðisflokkur voru að mörgu leyti samferða í vinnu í kringum málið í allsherjarnefnd en svo fór reyndar að lokum að menn voru ekki á okkar minnihlutaáliti. Ég veit ekki hvort það sé gömul tryggð úr þjáningarbandalaginu í stjórninni með Vinstri grænum sem veldur því að hv. þm. Sigurður Ingi Jóhannsson hrósar Sjálfstæðisflokknum fyrir málið. Enda er enginn raunverulegur munur á þessum tillögum. Við höfum talað um að í raun og veru sé í tillögu hv. þm. Brynjars Níelssonar verið að þrengja að einhverju marki þessi skilyrði fyrir því að þetta sé gert vegna þess að þarna sé verið að tiltaka ákveðna brotaflokka. Að vísu stendur eiginlega allt það sama í þessu og stendur í tillögum Miðflokksins í minni hlutanum. Ég nefni að ástæðan fyrir því að þessi tillaga kemur til er m.a. sú að meiri hluti allsherjarnefndar tekur skýrt fram í meirihlutaáliti að heimildarákvæðið sem er hérna í þessu frumvarpi skuli túlka þröngt og það er þetta sem við erum að hluta til að reyna að vinna gegn. Við leggjum til að fara frekar í áttina frá því að endilega sé kveðið á um að þetta skuli túlka þröngt.

Í hvora áttina telur hv. þingmaður Framsóknar hyggilegra að þetta fari, þ.e. í þrengri eða víðari átt, þegar kemur að lokaákvæðinu sem gerir okkur kleift að svipta menn alþjóðlegri vernd?

Í seinna svari hef ég takmarkaðan tíma og þá þurfum við sannarlega að ræða nokkra þætti sem hv. þingmaður kom inn á í sambandi við hagvöxt, innflytjendamál, EES-svæðið, sérfræðinga og annað eins. Ég vona að okkur gefist tækifæri til þess. Það er um margt að ræða.