útlendingar.
Virðulegi forseti. Ég sat einn eða tvo fundi í allsherjar- og menntamálanefnd þegar þetta mál var til umfjöllunar og ég setti mig þar af leiðandi svolítið inn í þessa áskorun og hef svo sem heyrt hana áður. Og nei, það er ekki þjónkun við eitthvert bandalag fortíðar með Sjálfstæðismönnum, enda held ég að hv. þingmaður hafi kannski tekið eftir því að ég var ekki að taka undir með Sjálfstæðisflokknum. Ég var að taka undir með tilteknum þingmanni vegna þess að hann hefði reynslu og ég var að gagnrýna að frumvarpið hefði ekki farið í samráðsgátt. Ég var að tala um að það skipti máli að fá álit fólks sem hefði unnið inni í þessum kerfum og að við þingmenn værum sannarlega ekki sérfræðingar en værum að skrifa lög. Þess vegna þurfum við að hafa svo mikinn aðgang að sérfræðingum sem geta hjálpað okkur að orða hlutina nákvæmlega rétt.
Ég held að ég hafi nefnt það hér í ræðu minni að ég teldi b-lið 2. töluliðar í breytingartillögu hv. þm. Brynjars Níelssonar taka út þessa víkkun, þetta væri ekki þrenging í hans tillögu heldur væri þetta að mínu mati góð skilgreining. Ég kalla bara eftir því að nefndin fari ofan í þetta og taki þessa umræðu enn og aftur. Ég veit að hún er búin að gera það nokkrum sinnum en ég held að það þurfi.
Svo varðandi af hverju Sjálfstæðisflokkurinn vildi ekki vera með í nefndaráliti Miðflokksins undir lokin — það hef ég ekki hugmynd um. Ég get líka útskýrt að ég hef heldur engan áhuga á að taka undir málflutning Miðflokksins í þessum málum. Þess vegna hélt ég þessa ræðu hérna og seinni hlutinn af ræðu minni var um annað vegna þess að það er að mínu mati komið nóg.