útlendingar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurði Inga Jóhannssyni fyrir svarið. Það er komið nóg, segir hann, væntanlega af umræðu Miðflokksins í útlendingamálum. (Gripið fram í: … útskýra …) Já, ég kalla eftir skýringum á þessu vegna þess að það sem við höfum bent á, og ég, í innflytjendamálum er að ef fram heldur sem horfir þá eykst hlutfall útlendinga á Íslandi ár frá ári á meðan Íslendingum er meira og minna hætt að fjölga. Þeim fækkar ef þú horfir á það út frá fæðingartíðninni. Þetta er ekki gott mál. Ég tel það ekki vera gott, sjálfsagt eða eðlilegt mál að í staðinn komi bara útlendingar í stríðum straumum út í hið óendanlega. Það er mín afstaða. Er það þessi afstaða sem hv. þingmaður gerir athugasemd við? Telur hann sjálfsagt, og gerir hann engar athugasemdir við, að Íslendingum fækki og innflytjendur komi einfaldlega í staðinn og að það verði niðurstaðan þegar á heildina litið? (Forseti hringir.) Það væri bara fínt að fá það fram og bara skýrt svar við því: Er ekkert við það að athuga?