157. löggjafarþing — 64. fundur,  29. jan. 2026.

útlendingar.

112. mál
[14:54]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Víðir Reynisson) (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Takk, vil ég segja við hv. þm. Sigurð Inga Jóhannsson. Takk fyrir að vera, held ég, með fyrstu ræðuna þar sem a.m.k. í helmingnum af ræðunni var fjallað raunverulega um það sem við erum að tala um hérna, þetta frumvarp, þessar breytingartillögur og annað slíkt. Takk fyrir það. Takk líka fyrir að tala eins og hann talaði, skýrt, um þetta. Þetta er alveg hárrétt hjá þingmanninum, það er óþolandi að við séum komin með umræðuna á það stig að fólki sem hingað hefur komið og búið hér í áratugi sé farið að líða illa, eins og það sé einhverjir annars flokks borgarar út af umræðunni. Við verðum að vanda okkur hvernig við tölum um þetta. Takk fyrir það.

Mig langaði kannski að koma aftur að frumvarpinu, ég ætla að einbeita mér að því og kannski orðum hv. þingmanns sem snúa að breytingartillögu hv. þm. Brynjars Níelssonar og þeim breytingum sem hann leggur til. Við höfum rætt þetta hérna, nokkrir hv. þingmenn, bæði í gær og í dag varðandi hvort hætta sé á að þetta þrengi og ég ætla nú kannski ekki að ekki að fara djúpt inn í það en kannski samt á þeim nótum hvort hv. þingmaður telji hættu á því að við séum að þrengja þetta of mikið, og aftur, ástæðan fyrir því að ég spyr um þetta er sú að fyrir nefndina komu sérfræðingar, lögfræðingar ýmsir sem lögðu á það áherslu að við reyndum að telja eins lítið upp og við gætum í þessari umfjöllun vegna þess að við værum að bjóða hættunni heim með því að þrengja þetta þá með upptalningu. Á móti kom hins vegar það álit sem kom fram í ræðu hv. þm. Brynjars Níelssonar og kemur fram í tillögunni að þetta þurfi að vera skýrt. Það þarf að vera þannig að það sé hægt að fara eftir þessu og þetta sé alveg skýrt. Það er þetta tvennt sem togast á í mér.