útlendingar.
Virðulegi forseti. Já, takk sömuleiðis, hv. þm. Víðir Reynisson. Ég bý í samfélagi þar sem í áratugi, þegar 10%, 12%, 15% íbúa í sjávarþorpum voru af erlendu bergi brotnir þá var ég líka í svoleiðis samfélagi, þá var ég langt inni í sveit og margt af því fólki hefur bara sest að. Mér hefur bara sviðið umræðan síðustu mánuði, vikur, misseri og ég hef bara séð á þessu fólki sem ég þekki að það hefur upplifað hluti sem það hafði ekki upplifað áður. Ég rek það til þeirrar umræðu sem m.a. er rekin hér úr þessum ræðustól af einstaka stjórnmálamanni og einstaka stjórnmálaflokkum. Þess vegna finnst mér mikilvægt að ávarpa það.
Það breytir engu í því að við viljum herða þessi tök á landamærunum, eins og ég fór yfir bæði í gær með þessa þingsályktun um alls konar hluti sem þarf að gera svo tollvarslan og lögreglan geti starfað öflugar og skilvirkar á landamærunum en líka þegar kemur að þessu hér, þegar fólk sækir um alþjóðlega vernd, á ekki rétt á því eða hefur fengið vernd á liðnum árum, þá hef ég áhyggjur af því að þetta frumvarp, sem er klárlega til bóta, muni ekki ná utan um nægjanlega mörg tilvik. Þess vegna fannst mér þessi tillaga, sem hér kom í gær frá hv. varaþingmanni Brynjari Níelssyni, sem hefur starfað bæði sem lögmaður og dómari í þessu kerfi, vera allrar athygli. Mér sýnist að hún sé bæði til að skýra málið og gera okkur kleift að taka á fleiri málum heldur en færri sem hafa komið upp á liðnum misserum en um leið vera nægilega opin í þessum tiltekna lið sem ég er búinn að nefna tvisvar, að það sé sem sagt ekki verið að þrengja. En ég hvet aftur nefndina til þess að skoða það betur.