157. löggjafarþing — 64. fundur,  29. jan. 2026.

útlendingar.

112. mál
[15:00]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Hvað getum við gert? Ég hef verið þeirrar skoðunar í mjög langan tíma að það sé mikilvægt að allir þeir sem vinna við þetta, hvort sem þeir eru dómsmálaráðherrar eða alþingismenn eða einhverjir slíkir, tali af virðingu og þekkingu og segi hlutina eins og þeir eru, séu hins vegar ekki að reyna að troða að pólitískum skoðunum sínum eða gera hlutina eitthvað gildishlaðna vegna þess að það dregur úr trúverðugleika þess sem verið er að segja. Þetta segi ég vegna þess að ég á ágætisvin, og við Íslendingar, sem heitir Bertel Haarder og var ráðherra lengst af í Danmörku, að ég held í 22 ár, enginn hefur verið lengur, og þingmaður í mjög langan tíma. Hann sagðist hafa orðið vinsælastur þegar hann var svokallaður „integrationsminister“ — ég sletti hér, með leyfi forseta — eða sem sagt ráðherra þessa málaflokks. Ég spyr: Hvernig í ósköpunum gastu orðið það? — Ég sagði bara satt. Ég fór bara út og útskýrði það. Hann var líka með nægilegan trúverðugleika, nægjanlega reynslu, nægilega þekkingu til þess að fólk trúði því sem hann var að segja og hann var ekki að skreyta hlutina. Hann bara sagði hlutina eins og þeir voru og þannig gátu menn kannski sameinast um að taka á hlutunum á skynsamlegan hátt.