157. löggjafarþing — 64. fundur,  29. jan. 2026.

útlendingar.

112. mál
[15:01]
Horfa

Sigmundur Ernir Rúnarsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Mig langar að taka undir með samflokksmanni mínum, hv. þm. Víði Reynissyni, og hrósa ræðu hv. þm. Sigurðar Inga Jóhannssonar sem talaði hér af yfirvegun, viti og virðingu. Það gengur ekki að blanda hér öllu saman þegar fjallað er um útlendingamál. Við tökum á móti fólki í neyð, við tökum á móti vinnuafli til lengri eða skemmri tíma en við gjöldum varhuga við alþjóðlegum glæpagengjum og Ísland skal ekki vera skjól fyrir það fólk. Við þurfum að tryggja öryggi borgara okkar en við tökum á móti vinnuafli, við tökum á móti fólki í neyð og við tökum á móti fólki utan EES.

Hvað er í húfi? Síðasta fréttin sem sá sem hér stendur skrifaði sem ritstjóri Fréttablaðsins fjallaði um það, árið 2023, að okkur vantaði 1.000 rafvirkja. Það er bara ein iðngrein. Sá sem hér stendur var á ferð sem þingmaður á árabilinu 2009–2013 veðurtepptur á Blönduósi. Þar var hópur nýsjálenskra manna sem störfuðu í sláturhúsinu á Blönduósi. Það fékkst enginn þá af Íslendingum til að starfa við þá iðju á Blönduósi, það þurfti að sækja vinnuaflið til Nýja-Sjálands, langt út fyrir EES. Þetta er staðan í dag. Ég veit að hv. þm. Sigurður Ingi Jóhannsson þekkir það sem þingmaður Suðurkjördæmis til langs tíma að þetta brennur á atvinnulífinu, ekki bara í Suðurkjördæmi heldur á öllu landinu. Það er gríðarlega mikið í húfi. Mig langar að fá hv. þingmann til að deila reynslu sinni af þeim raunveruleika sem blasir við atvinnulífinu um allt land í þessum efnum. Okkur vantar starfsfólk, jafnt innan EES sem utan þess, á öllum tímum sem við lifum núna.