útlendingar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hlý orð. Varðandi þörfina á vinnuafli þá hefur þörfin verið mest knýjandi úti á landi til að fyrirtækin og samfélögin úti á landi blómstri. Það sem hefur verið að gerast á síðustu árum með einmitt komu þessa fólks og auðvitað eru það líka Íslendingar sem hafa flutt heim vegna þess að samfélagið hefur vaxið og það eru komin fleiri tækifæri vegna þess að það er fleira fólk og það er hægt að framkvæma fleiri af þeim tækifærum sem menn hafa horft til en hafa ekki getað framkvæmt vegna þess að það hefur verið skortur á fólki. Þetta hefur verið reynslan núna síðustu árin. Þess vegna hef ég undrast, og ég heyri að hv. þingmaður er með sömu efasemdir, áherslur í atvinnustefnu nýrrar ríkisstjórnar. Ég undrast orðræðu hæstv. forsætisráðherra sem hefur verið að tala um að hagvöxturinn á landinu sé bara knúinn af innflutningi á fólki og það verði að stoppa það. Þá stoppum við hvað? Þá stoppum við uppbygginguna úti á landi. Þá mun hún hrynja aftur, þá mun verða skortur á fólki. Þá verður ekki lengur hægt að grípa þau tækifæri sem hafa verið til staðar og hefur verið hægt að klára vegna þess að það kom fólk. Margt af þessu fólki hefur komið til að vinna í einhverjum tilteknum störfum, einhæfum störfum þar sem ekki er krafist mikillar menntunar eða sérfræðiþekkingar. Síðan hefur komið í ljós að þetta fólk býr yfir fullt af sérfræðiþekkingu eða menntun og það fer að nýta hana í sinni eigin frumkvöðlalöngun eins og við gerum öll af því að Ísland kallar á að nýta slík tækifæri. Við höfum bara séð þetta blómstra hringinn í kringum landið hjá svo mörgum, sem hafa búið til bæði fyrirtæki og störf fyrir aðra. Ég hefði áhyggjur af því ef ríkisstjórnin ætlar að kúvenda og það verði hoggið svolítið undan tækifærum landsbyggðarinnar til að sækja áfram og hugsanlega verði spólað eitthvað til baka. (Forseti hringir.) Á sama hátt hef ég áhyggjur af þessari neikvæðu umræðu í garð útlendinga sem einstaka stjórnmálaflokkar standa fyrir, það hafi sömu áhrif.