157. löggjafarþing — 64. fundur,  29. jan. 2026.

útlendingar.

112. mál
[15:06]
Horfa

Sigmundur Ernir Rúnarsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurði Inga Jóhannssyni fyrir þessa umfjöllun og þetta svar. Það kemur ekki til greina að hindra för heiðarlegs vinnuafls til landsins á komandi árum, það yrði atvinnulífinu til mikilla trafala og uppbyggingu samfélaganna úti á landi. En ég hjó sérstaklega eftir því í virkilega góðri ræðu hv. þingmanns að hann talar um að hér sé verið að blanda og hrúga saman öllum málsatvikum í þessu máli. Það er eftirtektarvert, og mig langaði að heyra frá hv. þingmanni um það, hvaða fiskur liggur undir steini, að nú sé svo komið að stór hópur fólks sem hefur sest hér að til langframa og hefur búið hér í 10, 20, 30 ár, óttast orðið umræðuna á Íslandi. Hvaða fiskur liggur hér undir steini? Mér finnst hann rotinn. Hvað finnst hv. þingmanni?