útlendingar.
Virðulegi forseti. Á mínútu getur þetta nú orðið flókið en það er óþarfi, og ég hef sagt það áður, að flytja til Íslands menningarstríð Bandaríkjanna og það sem þar hefur verið. Þó að það sé hagvöxtur á Íslandi og tækifæri séu um margt lík á Íslandi og í Bandaríkjunum þá er eiginlega ekkert annað líkt. Á sama hátt er það líka alger óþarfi að vera að flytja inn öfga-Evrópu til Íslands og umræðuna sem þar er hjá hægri öfgaflokkum, popúlistum, sem eru smátt og smátt að taka völdin í Evrópusambandinu, í Þýskalandi, Frakklandi, tóku völdin í Hollandi um tíma. Spyrjum Ungverjaland, Pólland og fleiri lönd. Það er óþarfi að taka þetta inn. Við þurfum ekki að gera þetta. Af hverju þurfum við ekki að gera það? Vegna þess að við höfum bara annað kerfi hér. Svo ég vitni aftur til Bertels Haarders þá þekkjum við það á Norðurlöndunum að stórir hópar fólks sem þangað hefur komið er ekki í vinnu og hann hafði farið að skoða þetta. Ein af ástæðunum var að við vorum ekki með eins mikið af lokuðum atvinnutækifærum, sem sagt hér voru minni kröfur til að fólk gæti fengið starf. (Forseti hringir.) Staðreyndin er sú að langsamlega flestir, eiginlega allir þeir sem geta og vilja, hafa farið að vinna á Íslandi, ólíkt því sem er á Norðurlöndunum. Þess vegna þurfum við heldur ekki að taka þá umræðu hér.