157. löggjafarþing — 64. fundur,  29. jan. 2026.

útlendingar.

112. mál
[15:09]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta allsh.- og menntmn. (Snorri Másson) (M):

Virðulegur forseti. Það er mér mikil ánægja að fá að koma hér upp áfram til þess að ræða afturköllun alþjóðlegrar verndar en ekki síður skírskota eilítið til undangenginnar umræðu hérna á síðustu andartökum, þar sem ég hef skipst á orðum við hv. þm. og formann Framsóknarflokksins, Sigurð Inga Jóhannsson. Sömuleiðis blandaði hv. þm. og formaður allsherjarnefndar, Víðir Reynisson, sér inn í þá umræðu og hv. þm. Sigmundur Ernir Rúnarsson í lokin. Þar greindi maður mikinn samhljóm á meðal þessara manna um að eitthvað væri djúplega óviðeigandi við umræðu um innflytjendamál á Íslandi, ekki síst af hálfu Miðflokksins. Var tónninn að það væri eitthvert vandamál í eðli sínu að þetta stjórnmálaafl, sem ég er í forsvari fyrir sem varaformaður, tæki innflytjendamál í stóru samhengi til umfjöllunar.

Að sjálfsögðu er það gert í stóru samhengi. Að sjálfsögðu er ekki hægt að ræða um innflytjendamál bara með því að ræða hæliskerfið eða bara með því að ræða EES eða bara með því að ræða atvinnuleyfi utan EES. Hvaða vit væri í slíkri umræðu? Við horfum á tölurnar í heild sinni, hver þróunin er. Við göngumst við því hvaðan flestir eru að koma. Það er innan EES. Auðvitað átta ég mig á því. En ekki síður hefur hérna í gegnum síðustu ár og á allra síðustu árum mesti straumurinn legið utan EES, þ.e. hvort sem er í gegnum dvalarkerfið eða atvinnuleyfi utan EES.

Það er af mjög mörgu að taka hér til þess að maður reyni að bregðast við þeim bagalega misskilningi sem ríkir í þessari umræðu um að það sé á einhvern hátt verið að ala á tortryggni eða neikvæðni í garð útlendinga þegar við erum að tala hérna um framhaldslíf íslensku þjóðarinnar. Ef útlendingum heldur áfram að fjölga mun hraðar en Íslendingum á Íslandi lenda Íslendingar í minnihluta. Þetta er tölfræðileg staðreynd. Tölurnar benda til þess að þetta gæti verið þróunin ef fram heldur sem horfir. Horfumst í augu við þetta. Er vandamál ef þetta gerist? Að mínu mati, já. Menn geta verið annarrar skoðunar. Hv. formaður Framsóknarflokksins gat ekki svarað þessari spurningu hérna í andsvari heldur fór að snúa út úr. Hverju snýr hann út úr með? Með því að fara að fetta fingur út í umræðu um sérfræðinga svokallaða utan EES sem hafa nú verið þó nokkrir sem hafa komið hingað til lands. Vafalaust og augljóslega, það liggur fyrir, eru margir þessara sérfræðinga raunverulegir sérfræðingar og hafa farið og nýst í fyrirtækjum þangað sem þeir hafa farið að vinna en töluverður hluti þeirra sem hafa komið á þessum forsendum, að vera sérfræðingar sem koma hingað utan EES, hefur ekki verið sérfræðingar. Þeir hafa farið í önnur störf sem krefjast ekki sérfræðiþekkingar. Þeir eru hreinlega bara ódýrt vinnuafl frá útlöndum, þetta vinnuafl sem Samfylkingin og Framsókn syngja hér í einum kór núna um að við þurfum á að halda.

Gott og vel. Ég sé hagrænar skýringar á því að fyrirtæki og atvinnurekendur og kapítalistarnir þurfi á mannafli að halda. Ég býst ekki við að menn haldi að maður skilji það ekki. En samfélagið, hverjir eru hagsmunir samfélagsins til lengri tíma af því að taka þá aðeins mið af kröfum atvinnulífsins í þessu samhengi og atvinnurekenda um að hér þurfi ódýrt vinnuafl og ganga aðeins út frá því í allri umræðu um innflytjendamál eins og mér finnst hv. þingmaður og formaður Framsóknarflokksins gera, tala um sérfræðinga utan EES? Ef við förum og tölum um slík sérfræðingaleyfi: Hvaða áhrif hefur slíkur innflutningur á hagsmuni Íslendinga sem hafa menntað sig í þessum greinum ef það er alltaf hægt t.d. bara að ganga á sérfræðinga að utan, manna stöðurnar með því? Þeir eru í mörgum tilvikum þægilegra vinnuafl. Þeir gera minni kröfur, vinna meira og þiggja lægri laun. Þetta býr bara til beina samkeppni við þá sem hafa t.d. menntað sig til þessara starfa á Íslandi. Það eru hins vegar tilvik þar sem enginn hefur rétta og nauðsynlega þekkingu til verkefnisins. Við getum ekki horft fram hjá þeim. Ég hef verið í heimsókn hjá fyrirtækjum þar sem það er augljóst að það er eitthvert sérhæft verkefni sem þarf að leysa innan fyrirtækis og það verður mjög illa séð að einhver Íslendingur hafi þekkinguna eða sé tiltækur í verkefnið.

Ég hef tekið mjög skýrt fram í þessari umræðu að ég er ekki að tala um að loka á slík leyfi. Það hefur enginn talað um að loka á slík leyfi og ég man nú að þegar fjölmiðlar fjölluðu um þetta þegar við töluðum um þetta síðast í þinginu gerðu þeir sér sérstaklega far um, greinilega, sýndist mér, að taka ekki fram að þessa hefði ég látið getið í minni umræðu. Vegna þess að markmiðið er að láta málflutninginn líta einhvern veginn verr út eða öðruvísi út en hann er í raun og veru. Þannig að það er skýrt, ég átta mig á að í einhverjum tilvikum er raunveruleg þörf á raunverulegum sérfræðingum í raunveruleg störf. Hins vegar eru þessi kerfi og hafa verið notuð til þess að flytja inn ódýrt vinnuafl og gott og vel, þá getum við horfst í augu við það. Og ef menn segja þá já, við ætlum að flytja hérna inn ódýrt vinnuafl sama hvað það kostar út í hið óendanlega, sama hvað það kostar samfélagið, sama hvaða áhrif það hefur, sama þótt við getum ekki talað íslensku lengur, sama þótt mönnum líði eins og útlendingum í eigin heimabæ, þá er það bara þannig. Og þá geta menn bara komið hérna í ræðustól Alþingis og gengist við þessu í stað þess að vera hérna með hálfkveðnar vísur um að við sem treystum okkur til þess að ræða þessi mál í einhverju heildarsamhengi séum að gera það af einhverjum annarlegum ástæðum til þess að ala á hatri, tortryggni eða andúð í garð fólks. Það hefur aldrei verið markmiðið og ég segi að ef eitthvað hefur búið til aðstæður þar sem tortryggni grefur um sig gagnvart t.d. útlendingum hér á Íslandi þá er það innflytjendastefna Framsóknarflokksins hérna á síðustu tíu árum. Þá eru það opnu landamærin sem þeir stóðu fyrir, þá eru það mistökin sem þeir hafa gert og neita að horfast í augu við á þessu stigi.

Ef við erum með hlutföll innflytjenda hérna á Íslandi sem eru kannski upp á 5 eða 10% þá er eiginlega enginn að gera athugasemd við innflytjendastefnuna. Það er ekki fyrr en hlutirnir fara úr böndunum og við finnum fyrir þessu í daglegu lífi, að samfélag okkar sé orðið allt öðruvísi en það var, við getum ekki talað íslensku lengur, að hlutirnir séu orðnir framandi í okkar eigin heimkynnum, að við förum að gera athugasemd við þetta. Ef við hugsum um bekk þar sem tveir Pólverjar eru, eins og maður ólst upp við hérna í gamla daga — það voru innflytjendur hérna á árum áður þótt stóra bylgjan hafi hafist hérna kannski upp úr 2010. Tveir Pólverjar koma inn í bekk, eru nauðbeygðir að læra íslensku og taka þátt í samfélaginu. En ef þeir eru orðnir átta saman? Við vitum hvernig hópar virka. Við vitum hvernig mannleg samskipti virka. Þá eru Pólverjarnir mun líklegri til þess að taka sig saman og vera sín á milli. Þetta er bara eitt handahófskennt dæmi, ekki algilt, en þetta er almenna tilhneigingin, þetta er mannlegt eðli. Þannig að hvað þjónaði hagsmunum þessara innflytjenda? Að þetta væri smærra í sniðum, að þetta væru færri innflytjendur eða að þetta væru fleiri innflytjendur? Ja, það var betra þegar þetta var hóflegur straumur. Það var betra fyrir hagsmuni innflytjenda og það var betra fyrir hagsmuni Íslendinga.

Það er af gríðarlega mörgu að taka hérna og mér finnst alveg furðulegt að t.d. hv. formaður Framsóknarflokksins, sem áður hefði talist í gömlu umræðunni þjóðhollur flokkur í einhverjum skilningi, geti ekki horfst í augu við það að menn verða að taka umræðu um innflytjendastefnuna til lengri tíma. Ég heyri það hreinlega að hv. formaður Framsóknarflokksins, sem er genginn úr salnum að vísu, er ófær um að taka umræðuna alla leið, hver niðurstaðan er af þeim stefnum sem við erum að boða. Hver er niðurstaðan, eins og hann segir, af hans hugsun um að það megi bara ekki gera athugasemd við neinn þátt innflytjendastefnunnar nema rétt svo einhver öryggisatriði á landamærum, ekki grundvallarhugsunina um að hér eigi landamærin meira og minna að vera opin í ýmsar áttir?

Nú, hagvöxtur kemur alltaf til umræðu hér í þessu samhengi. Okkur vantar fólk utan EES og innan EES, segir hv. þm. Sigmundur Ernir Rúnarsson, og eins og ég spurði hér áðan er spurningin: Hvern vantar fólk? Það er líklega ekki íslenskan almenning sem lendir í því að húsnæðismarkaðurinn verður flóknari, að íslenskumöguleikar þeirra verða takmarkaðri, að skólakerfið versnar, að álag á innviði og heilbrigðiskerfi verður meira, en það er kapítalistana, ef við tölum alveg hreint út. Það er atvinnulífið, ég veit alveg að inni í því eru smærri fyrirtæki sem líka vantar starfsfólk. En þetta eru stóru hagsmunir atvinnulífsins og það eru afmarkaðir og þröngir hagsmunir. Síðan tala menn um hagvöxt og hv. þm. Sigurður Ingi Jóhannsson virðist vera í afneitun um að fólksflutningar hafi drifið áfram hagvöxt hérna á Íslandi. Það er staðreynd. Það er ekkert umdeilanlegt, það er staðreynd. Hins vegar getum við horft til þess að á árunum 1945–1987 mældist meðalhagvöxtur á ári um 4,5%. Á árunum 1995–2024 mældist meðalhagvöxtur samkvæmt mínum tölum eitthvað um 3% á ári og þarna í kringum 1990 fórum við inn í EES og það var opnað fyrir frjálst flæði fólks hingað. Stóru bylgjurnar hefjast, eins og ég segi, ekki fyrr en eftir aldamót en það er ekkert sem segir það í hagsögu Íslands að eina leiðin til að halda uppi hagvexti sé að hafa þessi opnu landamæri. Það er ekkert sem segir það. Það er margt sem bendir til þess að það sé miklu skynsamlegra að byggja upp hagkerfið með einhverjum allt öðrum hætti.

Þannig að núna kallar maður eftir því á þessu stigi máls, jafnvel þótt við séum að ræða þetta afmarkaða mál sem er öryggisatriði í tengslum við hæliskerfið í þessu frumvarpi, að menn komi þá við fyrsta færi hér í ræðustól og geri grein fyrir sínum sjónarmiðum. Hvenær telja þeir að innflytjendastefnan sé orðin ósjálfbær? Það er greinilega ekki þegar íbúar í Reykjanesbæ eru orðnir 35% af erlendum uppruna eins og nú er. Það er greinilega ekki þegar karlmenn á vinnualdri, 30 til 40 ára, eru 40% erlendir ríkisborgarar. Það er greinilega ekki núna þegar íbúar í Mýrdalshreppi eru orðnir 67% útlendingar eða innflytjendur. Það er greinilega ekki núna þegar fjórði hver Reykvíkingur er erlendur ríkisborgari. Það er ekki núna. En hvenær þá? spyr ég og vænti raunverulegra svara vegna þess að það er það eina sem við erum að tala um hér.

Að þessu sögðu bendi ég sömuleiðis á, að lokum, ákveðna tálsýn þessara jákvæðu stjórnmálamanna sem bera ábyrgð á innflytjendastefnu síðustu ára hérna um að það sé nú sjálfsagt að ræða það að menn þurfi að kenna útlendingum íslensku. Hjá mörgum strandar öll útlendingaumræðan á því að það sé nú alveg sjálfsagt að ræða það að við þurfum aðeins að bæta í íslenskukennslu, setja auka 100 milljónir þar í.

Hver hefur árangur síðustu ára verið í því að tryggja að útlendingar og innflytjendur sem hingað flytjast læri íslensku? Hann hefur verið sá versti í heiminum ef við horfum á tölur OECD. Mig rámar í að við séum á botninum á þeim lista ef þú horfir á árangur þjóða í að tryggja að innflytjendur læri tungumálið. Það er 18%, það er fimmti hver maður. Þetta finnum við í daglegu lífi. Það þarf engar rannsóknir, enga sérfræðinga, engar stefnur, greinargerðir eða kortlagningu til að átta sig á þessu. Við finnum þetta í daglegu lífi, að íslenska er á undanhaldi. Þetta fer inn í eitraðan kokteil sem ég hef nefnt, sem er þessi bandaríska menningarlega nýlendustefna sem við erum því miður undirorpin, að krakkarnir eru ofurseldir bandarísku menningarefni í tækjunum, kunna sum ensku jafnvel betur en íslensku, eða það halda þau. Hún er þeim tamari í öllu falli. Þessir krakkar eru í skólakerfinu þar sem sums staðar er yfirgnæfandi hluti barna af erlendum uppruna og hvert verður millimálið á milli þessara barna? Og þar komum við aftur að skólakerfinu eins og ég talaði um hérna áðan. Þegar töluverður hluti hópsins er útlenskur, íslensku krakkarnir kunna ensku, hvar lenda menn? Í hinu almenna, viðurkennda samskiptamáli. Það verður enska.

Ef þetta þróast svona kynslóð eftir kynslóð er það óafturkræfur skaði. Það verður ekki aftur tekið. Að menn neiti að horfast í augu við þetta er vítavert og að fara í tilfinningasemi um að hér líði einhverjum sem einhver talaði við einhvers staðar mögulega óþægilega undir umræðu um innflytjendamál. Íslendingar hafa bara rétt á að ræða innflytjendamál í sínu eigin landi. Og hér eru margir frábærir innflytjendur sem hafa nákvæmlega sömu skoðun á innflytjendamálum, að hér sé allt of geyst farið. Og það er ekki bundið við einn eða annan hóp.

Ekki það, ég nefni það, talandi um hópaskiptingu, að það stefnir í það, eins og ég fjallaði um hérna á dögunum, að íslensk stjórnmál geti í auknum mæli farið að einkennast af átökum, innbyrðis átökum á milli þjóðarbrota og þjóðernishópa. Við sjáum að nú er boðuð stofnun flokks innflytjenda í stjórnmálum, þess fyrsta sinnar tegundar, er sagt, eins og það séu gleðileg tíðindi að hér stefni í það að þessi hluti þjóðarinnar, íbúar hér, sem eru innflytjendur, 20%, sé kominn með sérstaka hagsmuni sem eru ólíkir hagsmunum annarra landsmanna. Og hvað segir hópurinn sem talar alltaf um aðlögun og inngildingu um þetta framferði? Er þetta vel heppnuð inngilding og aðlögun? Af því að þarna eru bara tvær spurningar. Þetta er já eða nei. Hafa þeir rétt til þess að stofna hagsmunahóp utan um sína eigin hagsmuni, sem ég tel nú að vinstri menn segi að þeir eigi? Og þar með er þá augljóst að það var aldrei raunhæft að þessir hagsmunir færu alfarið saman. Þetta eru stríðandi fylkingar sem myndast ef þetta gengur svona mikið lengur og það er bagalegt. Þannig að við skulum bara tala hreint út um þessi mál og hætta þessari blessuðu tilfinningasemi.