útlendingar.
Virðulegur forseti. Já, það eru áskoranir í þessum málaflokki og enginn ágreiningur um það í sjálfu sér að við tökum á móti fólki og að við tökum á móti fólki innan og utan landa Evrópusambandsins. Við erum aðilar að einum vinnumarkaði þannig að það eru um hundruð milljóna sem hafa aðgang að íslenskum vinnumarkaði í gegnum það. Það er í sjálfu sér eitthvað sem við höfum kosið og er okkur til hagsbóta. Það er til hagsbóta fyrir Íslendinga að geta ferðast milli landa, geta sótt nám og skóla og milli landa, geta sótt vinnu í öðrum löndum án þess að þar sé of fyrirferðarmikið. Það hefur verið mikilvægt fyrir okkur að fá margt af þessu fólki til landsins. Það hefur verið vöxtur í íslensku atvinnulífi á undanförnum árum. Þar má alveg sérstaklega nefnilega ferðaþjónustuna og það hefur haft í för með sér mikla eftirspurn eftir vinnuafli. Þannig hefur þetta haft mikil áhrif á á vinnumarkaðinn. Svarið við þessu er að það hefur komið fólk til Íslands sem hefur verið að hasla sér völl á þessum vettvangi. Þetta hefur verið hluti af þeim aukna hagvexti sem hefur verið á Íslandi á undanförnum árum. Það hefur haft áhrif á hagvöxtinn og hefur haft þær afleiðingar í för með sér að lífskjör hér eru betri en gengur og gerist annars staðar. Það er kannski m.a. þess vegna sem er það líka eftirsótt að koma til Íslands en þetta skapar miklar áskoranir og það er það sem við erum að glíma við. Þetta skapar áskoranir á alla innviði. Þetta skapar mikil áhrif og áskoranir í skólakerfinu, á húsnæðismarkað o.s.frv. Sumu af þessu hefðum við getað brugðist við. Það er til að mynda í raun ömurlegt hvernig haldið hefur verið á málum þegar kemur að skólakerfinu. Við höfum alveg brugðist við í þeim efnum að einhvern veginn aðskilja nemendafjöldann, þennan mikla fjölda, einhvern veginn til hliðar í skólakerfinu og horfa til þess að hafa öfluga íslenskukennslu svona í hliðinni á þeirra skólastarfi. Ég lagði það til þegar ég var við ríkisstjórnarborðið á síðasta kjörtímabili og við vorum að fá allt þetta fólk frá Úkraínu, sem við vorum öll sammála um að við þyrftum að að skjóta skjólshúsi yfir og uppfylla þar með samning okkar og aðild að flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna, að fundnir yrðu kennarar úr hópi þessa fólks — þetta hefði mátt gera með fólk frá Venesúela líka og jafnvel Pólverja og fleiri — ef við myndum halda áfram og fá námsefni, til að mynda frá Úkraínu í þessu tilfelli, og fá úkraínska kennara úr hópi flóttamanna og kenna þessum börnum áfram á sínu tungumáli þannig að þau gætu haldið áfram óáreitt í sínu námi, og vera síðan með öfluga íslenskukennslu við hliðina. Þessu lögðust Vinstri græn algerlega þversum gegn þegar þetta var rætt við ríkisstjórnarborðið og sögðu að við værum að auka aðskilnað í skólakerfinu. Samfylkingin hefði aldrei samþykkt þetta heldur á þeim tíma og kannski ekki Viðreisn heldur vegna þess að þeirra afstaða í útlendingamálum var mjög sambærileg afstöðu Vinstri grænna á þessum árum. Þetta hefði þýtt að álagið á okkar venjulega skólakerfi hefði minnkað verulega. Menn hefðu getað einbeitt sér áfram þar að því að sinna þeim nemendahópum sem þeir voru með og smátt hefðu þessi börn síðan getað síast inn í íslenskt skólakerfi eftir því sem þekking þeirra á tungumálinu hefði aukist.
Á húsnæðismarkaði var skortur, m.a. af þessum mikla innflutningi. Þar getum við líka kennt um ákveðnum viðbrögðum sveitarfélaganna sem stóðu sig illa, sérstaklega Reykjavík, í því að auka lóðaframboð þegar byggingamarkaðurinn gat í raun afkastað meiru en hann fékk tækifæri til. Við höfðum líka mikla þörf fyrir að fá fólk, jafnvel utan af EES-svæðinu, sérfræðinga á ýmsum sviðum, til landsins. Við vorum með áskoranir frá atvinnulífinu, frá Samtökum atvinnulífsins og fleirum, um að rýmka reglurnar þegar þegar kom að þessu. Þetta gat jafnvel átt við um heilbrigðiskerfið líka þannig að við breyttum lögum í þessa átt til að liðka um í þessum efnum og reyna að svara þessum áskorunum. Öflugt og fjölbreyttara atvinnulíf hefur kallað á á fleiri sérfræðinga sem við höfum jafnvel ekki mjög mikið af. En þetta hefur stuðlað að eflingu fyrirtækja og fjölbreytni í atvinnulífi og sérstaklega víða úti um land hefur þetta alveg skipt sköpum og í mörgum tilfellum aðlagast þetta fólk bara ágætlega.
En af hverju erum við þá að setja útlendingalög? Af hverju eru þessi viðbrögð hjá öllum Evrópuþjóðum og ekki síst Norðurlöndum eins og okkur? Jú, það er vegna misnotkunar á kerfinu. Er eðlilegt að afleiðingarnar séu þær að það séu myndast ákveðin gettó hér innan höfuðborgarsvæðisins? Er það eðlilegt? Er það gott fyrir skólakerfið? Er eðlilegt að einhverjir skólar séu svo fjölbreyttir í þjóðernum að þeir eru illa færir um að sinna skyldum sínum gagnvart nemendum? Þetta eru auðvitað hlutir sem eru ekkert í lagi. Hvernig stöndum við þá gagnvart íslenskukennslu og slíku? Fyrirtækin hafa mörg hver stigið stór skref í þessu. Ég var nú í heimsókn vestur á Granda hérna fyrir stuttu síðan. Þar er fólkið með tungumálakennslu í eyrunum allan daginn, starfsmennirnir, sem fyrirtækið er að bjóða þeim upp á. Þetta er í gangi í fleiri fyrirtækjum. Þannig að atvinnulíf og hið opinbera geta svolítið stigið saman skrefin í þessu.
Verndarkerfið er í eðli sínu mjög fallegt og markmið þess er mjög mikilvægt. En svo getum við spurt okkur: Er eðlilegt að það sé mjög hátt hlutfall af þessu erlenda fólki á atvinnuleysisskrá? Birtist ekki mögulega misnotkun á kerfinu þar? Er eðlilegt að margir vinnuveitendur þekki það þegar störf eru auglýst að þá sé mikið af málamyndaumsóknum, m.a. frá fólki sem er á atvinnuleysisskrá en er raunverulega ekki að leita sér að vinnu og óski síðan eftir því, ef það fær mögulega vinnu að það fái greitt svart. Er eðlilegt að við gerum ekki meiri kröfur um aðlögun að íslenskri menningu og samfélagsgerð? Allt eru þetta miklar áskoranir og það er þess vegna sem við setjum lög og reglur, m.a. vegna þess að fámenni okkar þjóðar ræður ekki við stórverkefni á þessu sviði. Við verðum að sníða okkur stakk eftir vexti. Við erum að setja lög og reglur fyrst og fremst til að bregðast við misnotkun á fallegu og góðu kerfi. Skipulögð glæpastarfsemi er óneitanlega fylgifiskur þessarar misnotkunar og birtist okkur m.a. í því að það er mjög stórt hlutfall fanga í íslenskum fangelsum af erlendu bergi brotnir. Er það eðlilegt? Nei. Við þessu þarf að bregðast og það er það sem þetta gengur út á. Við erum m.a. að fjalla hér um frumvarp sem gerir ráð fyrir því að ef það fólk sem hingað hefur komið er að brjóta af sér og er ekki að aðlagast íslensku samfélagi, sem eðlilegt gæti talist, þá viljum við geta vísað því úr landi.
Það er rík samstaða sem er komin í þinginu, söguleg samstaða, eins og ég fór yfir í ræðu minni í gær, sem felst í því að styrkja útlendingalöggjöfina til að stöðva þessa misnotkun, til að bregðast við því að áhrifin á íslenskt samfélag séu að verða óþægilega mikil og ekki góð í allt of mörgum tilfellum. Þess vegna setjum við þessar reglur og við erum sammála um þetta. Þess vegna biðjum við Sjálfstæðismenn um það og fleiri í minni hlutanum um að málið fari til nefndar núna á milli 2. og 3. umræðu og að þar verði teknar til umfjöllunar þær breytingartillögur sem við höfum lagt fram við málið; breytingartillögur sem eru góðar, breytingartillögur sem taka á ákveðnum veikleikum sem eru í þessu frumvarpi, veikleikum sem munu leiða til þess að þetta frumvarp nær ekki markmiðum sínum eins og talað er um. Nú reynir auðvitað á þessa stjórnarflokka að spila með okkur á þessum vettvangi, að koma hér í samstarfið, að standa við öll stóru orðin um að þau ætli að taka á þessum veikleikum í útlendingamálum, í útlendingalöggjöfinni. (Forseti hringir.) Það er ákall okkar að þau komi með okkur í alvöruvegferð. Ég óttast bara að ágreiningurinn sem er innan stjórnarflokkanna um að stíga stærri og meiri alvöruskref (Forseti hringir.) í útlendingamálum, sé ekki raunverulegur, þetta sé svolítið yfirborðskennt eins og allt of margt sem er hjá þessari ríkisstjórn.