157. löggjafarþing — 64. fundur,  29. jan. 2026.

útlendingar.

112. mál
[15:35]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Í upphafi þingfundar í dag gerðu hv. þingmenn athugasemdir við það að hér væri á dagskrá mál er varðaði grásleppuveiði, stórkostlega breytingu á skipulagi grásleppuveiða sem heggur í veiðikerfið almennt og er mál sem er að öllu leyti illa undirbúið. Þetta er þingmannafrumvarp. Með fullri virðingu fyrir hv. þingmanni sem það flytur þá hefur það ekki fengið þann undirbúning sem lagafrumvörp alla jafna verðskulda. Á það var bent þegar málið var afgreitt úr hv. atvinnuveganefnd í nóvember, á það var bent í dag að komnar væru fram nýjar upplýsingar sem margir þingmenn hér vissu ekki um, að hv. atvinnuveganefnd hefði neitað nefndarmönnum sem um það báðu að fá gesti frá atvinnuvegaráðuneytinu á fund nefndarinnar til að ræða málið. Í því ljósi er gerð athugasemd við það að þetta mál skuli vera enn þá hér á dagskrá. Það hefur verið rætt hér við þingmenn stjórnarmeirihlutans og það hafa verið áhugaverð viðtöl sem við höfum átt við stjórnarþingmenn um þetta mál sem full ástæða er til að reifa hér undir þessum lið, fundarstjórn forseta. Það mun ég gera í næstu atrennu.