útlendingar.
Virðulegi forseti. Ég ætla að taka undir með hv. þm. Sigríði Á. Andersen. Við erum búin að nefna þetta hér frá upphafi þingfundar. Ég kom inn á það í ræðu minni í upphafi um fundarstjórn forseta að hér hafi þingstörf gengið með miklum ágætum í vetur svona almennt séð og það er fullur hugur til þess að geta haldið því áfram. Við erum að ræða til að mynda mál núna sem ég held að við getum klárað fljótt og vel og þingsköp geti haldið áfram. En það að grásleppufrumvarpið skuli ekki vera farið af dagskrá, að það skuli ekki vera tekið tillit til okkar með þessi augljósu, sanngjörnu atriði sem við erum að nefna í tengslum við það mál setur allt hér í þinginu í hnút. Ég neita að trúa því að forseti vilji ekki reyna að leysa þau mál. Þetta mál er illa unnið. Það bíða hér vel á annað hundrað grásleppumenn, grásleppuútgerðir, litlar útgerðir sem eru núna nokkrar (Forseti hringir.) farnar að veiða samkvæmt þeirri úthlutun sem þeir fengu í haust. Nokkrir eru að fara af stað eftir helgi vegna þess að verðið er mjög hátt núna. Þetta geta þeir gert. Þetta gátu þeir ekki gert áður, þeir (Forseti hringir.) gátu ekki farið á sjó svona snemma áður vegna þess að kerfið getur ekki boðið upp á það öðruvísi en að þetta sé í aflahlutdeild. Ég bið um að þetta mál sé tekið út af dagskrá og það rætt. (Forseti hringir.) Við finnum líka fyrir því að meðal margra stjórnarþingmanna er mikill skilningur á málflutningi okkar í þessum málum.
(Forseti (ÞSv): Forseti minnir á að í umræðu um fundarstjórn forseta er ræðutíminn ein mínúta.)