útlendingar.
Virðulegur forseti. Það er augljóst að Flokkur fólksins hefur hér hreðjatak á samstarfsflokkum sínum í ríkisstjórn. Það er alveg augljóst. Mig rennir í grun að hér séu ríkisstjórnarflokkarnir komnir út á rúmsjó með strandveiðimálin sín sem hefur verið lofað Flokki fólksins og nú eigi að stinga dúsu upp í Flokk fólksins með því að afgreiða hér á þingi algerlega vanbúið, ómálefnalegt og órætt frumvarp, þingmannafrumvarp, mál þingmanns Flokks fólksins, um veiðar á grásleppu þvert ofan í óskir nefndarmanna í hv. atvinnuveganefnd um að fá að ljúka þinglegri meðferð þar, hefðbundinni meðferð með gestakomum frá atvinnuvegaráðuneyti og frá þeim ríkisstofnunum sem áður hafa lýst yfir fullum og málefnalegum efasemdum um málið. Þá (Forseti hringir.) er heykst á þeirri einföldu bón að taka málið aftur inn til nefndar til að það geti verið afgreitt, eftir atvikum, aftur út úr nefndinni og komið hér til 2. umræðu aðeins skárr búið.