útlendingar.
Frú forseti. Ég tek undir ummæli þeirra sem komið hafa hér undir fundarstjórn forseta varðandi þetta frumvarp, þingmannafrumvarp, sem er komið fram og á að setja í 2. umræðu í dag, vanbúið frumvarp sem ekki er að fullu rætt í nefndinni. Ég bendi m.a. á það að ég á sjálfur frumvörp í nefndum víða og væri gaman ef þau gætu fengið svipaða meðferð, kæmust hér inn og við gætum rætt þau hér í þingsal. En þetta er auðvitað ekki boðlegt fyrir þingið að ætla að fara að ræða þetta frumvarp sem er mjög mikilvægt frumvarp um grásleppu og fiskveiðar almennt og getur haft víðtækari áhrif en bara um þessa grásleppu, hreint og beint. Ég er því hissa á því að þetta skyldi vera sett hérna inn og tek undir þau orð að það virðist vera sem Flokkur fólksins hafi tögl og hagldir hvað varðar dagskrá þingsins.