útlendingar.
Hæstv. forseti. Það er dálítið skondið að ræða þessi mál. Hér er raunverulega verið að tala um sérhagsmuni eða heildarhagsmuni og það eru heildarhagsmunir að taka grásleppumálið til endurskoðunar og breyta því aftur til fyrra horfs. Reyndar má segja að það þurfi, en ekki að gæta sérhagsmuna eins og stjórnarandstöðuflokkarnir allir eru að gera. Sjálfstæðisflokkur, Framsóknarflokkur og Miðflokkurinn eru allir að verja á ískaldan hátt sérhagsmuni. Þeir eru að berjast fyrir stórútgerðina og eru nánast eins og, ég veit ekki hvað maður á að segja, líkast því að vera bara í brúðuleikriti sem er stjórnað af LÍÚ og SFS.