útlendingar.
Virðulegi forseti. Hér undir fundarstjórn forseta vil ég taka heils hugar undir það sem hér kom fram áðan, sérstaklega hjá hv. þm. Jóni Gunnarssyni. Það er búið að vera ágætissátt um störf þingsins á undanförnum vikum og það er óskiljanlegt að þetta mál þurfi að fara í 2. umræðu þegar það er algjörlega ótilbúið til að fara í 2. umræðu. Ég er varaþingmaður en ég verð að segja að ég hélt að það væri aðeins hærri bragur á vinnulaginu hér en maður sér í þessu máli. Ég vil bara skora á forseta að taka þessari áskorun okkar um að taka þetta mál inn í nefndina aftur vegna þess að það þarf miklu betri og meiri umfjöllun. Hér er verið að taka úr sambandi innan við tveggja ára gamalt lagafrumvarp, innan við tveggja ára gamalt. Það er eitt veiðitímabil sem er búið að vera í gangi varðandi þessi nýju lög (Forseti hringir.) þannig að ég …(Gripið fram í.)