útlendingar.
Virðulegur forseti. Það lætur ekki að standa á sér skítkastið hérna þegar það byrjar hér söngurinn um að það sé verið að verja einhverja sérhagsmuni og hagsmuni stórútgerða. Þar tók nú alveg botninn úr þessu. Hér er um að ræða eitthvað á annað hundrað litlar útgerðir, minnstu útgerðir landsins. Lögin eru með þeim hætti að það getur enginn orðið stór í þessu kerfi, þú getur haldið á að hámarki 1,5% af aflaheimildum á grásleppu. Þetta er sniðið utan um þetta. Ef menn vilja setja frekari stærðarmörk á báta og frekari reglur erum við tilbúin til þess. Málið er bara illa unnið. Það er grunnurinn. Þetta stenst ekki reglur um vandaða löggjöf, enda um þingmannamál að ræða sem nýtur ekki einu sinni stuðnings allra úr meiri hlutanum. Það er bent á það í umsögnum og af lögfróðum aðilum að þetta mál standist heldur ekki (Forseti hringir.) stjórnarskrá lýðveldisins. Hvernig er hægt að bjóða upp á það, virðulegur forseti, að við eigum að sitja undir slíkum vinnubrögðum hér? (Forseti hringir.) Ég hélt við værum búin að fá nóg af þessu, að það væri verið að búa til hér af hálfu ríkisstjórnarflokkanna stöðugan ágreining (Forseti hringir.) um grundvallaratriði sem leiðir af sér leiðindaþing, að við stöndum hér bara í leiðindamálum, stöndum hér og verðum að tala í öðrum málum (Forseti hringir.) til að forða því að þetta mál komist til 2. umræðu. Ég bið forseta, ég bið forseta innilega að skera á hnútinn og losa okkur undan þessu.
(Forseti (ÞSv): Ég bið hv. þingmenn að virða ræðutímann.)