útlendingar.
Virðulegi forseti. Við heyrum hér gamalkunnugt stef og kannski rétt að minna hæstv. forseta á að forseti hefur áður þurft að grípa inn í störf atvinnuveganefndar. Vil ég þar sérstaklega nefna að í tíð fyrrverandi formanns atvinnuveganefndar hefur orðið að grípa fram fyrir hendurnar á formanninum og hreinlega láta halda fundi þar sem þeir gestir fá að koma sem óskað er eftir. Ég á bara mjög erfitt með að skilja það af hverju við kjósum það að fara í ófrið um þetta mál þegar spurningin snýst um það að taka eina viku. Það er varla lengri tími sem það tekur, eina viku til að alla vega fullnægja þeim þáttum málsins sem snúa að forminu og við köllum þessa aðila sem óskað hefur verið eftir að komi fyrir nefndina. (Forseti hringir.) Þá getum við setið hér það sem eftir er og rætt síðan það sem okkur greinir á um í frumvarpinu sjálfu. Þannig að ég skora á forseta að grípa hér inn.