157. löggjafarþing — 64. fundur,  29. jan. 2026.

útlendingar.

112. mál
[15:48]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Maður heyrir hér rykfallið búktal aftan úr forneskju, stjórnarandstaðan sökuð um að verja sérhagsmuni stórútgerðarinnar og standa í einhverju brúðuleikriti. Hverjir eru aðalleikendur í þessu brúðuleikriti? Er það ekki Flokkur fólksins? Er það ekki Flokkur fólksins sem er aðalleikarinn þar? Hvernig eru vinnubrögðin í atvinnuveganefnd? Þar fást ekki eðlilegar samræður við gesti í slíku máli eins og hér er um að ræða heldur á að koma málinu hingað í gegnum þingið, 2. umræðu, án fyllilegrar afgreiðslu í nefndinni. Hver er leikari í brúðuleikritinu annar en Flokkur fólksins? Hann virðist reyndar, frú forseti, hafa tekið yfir dagskrá þingsins með þessari gjörð, með því að setja hérna fram mál algjörlega órætt í nefndinni.