útlendingar.
Frú forseti. Maður getur ekki annað en brosað við að heyra þessa umræðu frá hv. þingmönnum. Mér er samt ekki hlátur í hug. Að tala um að þetta mál sé illa unnið. Þetta mál er búið að vera inni í nefnd á síðasta þingi, fékk ítarlega umræðu, var komið út úr nefnd til 2. umræðu en fékkst ekki afgreitt hér vegna málþófs í veiðigjöldunum. Núna er það komið aftur út úr nefnd, það eru tveir mánuðir síðan, fékk ítarlega umræðu inni í nefnd og fjölda aðila til umsagnar.(Gripið fram í: Þar er rangt.) Það er ekki rangt. (Gripið fram í: Það er rangt. )Hv. þingmaður ætti að mæta betur á nefndarfundi til að fara með rétt mál. (Gripið fram í.)
(Forseti (ÞSv): Gefum ræðumanni hljóð.)
Við fengum bæði Hafró og Fiskistofu og fjölda annarra aðila sem koma fram í nefndarálitinu og fjölluðum lengi og ítarlega um málið. (Gripið fram í.) (Gripið fram í: Hættu þessu gjammi.)
(Forseti (ÞSv): Þingmaðurinn verður að gefa ræðumanni hljóð.)
Sannleikurinn er sumum sárastur. Til að rifja það upp þá eru þau lög sem nú eru í gildi um hrognkelsaveiðar — ekki tóku þau marga daga á þinginu vorið 2024, um þrjá daga, og í heild fengu þær umræður, hugsið þið nú vel, fjórar klukkustundir og 57 mínútur. Þetta er gífurlega djúp umræða sem þetta mál fékk. Við erum búin að ræða þetta mál mörgum sinnum betur, (Forseti hringir.) það er fullbúið til umræðu og verið ekki hræddir, hv. þingmenn, við að taka lýðræðislega umræðu um málið sjálft.