útlendingar.
Virðulegur forseti. Ég sé mig knúinn til að koma hingað upp í annað sinn til að benda á hið augljósa í málinu, að sjálfbærar og ábyrgar veiðar eru aðalsmerki og frumforsenda fyrir því að viðhalda fiskstofnum við Íslandsmið, eru frumforsenda fyrir því að við kynslóðin í dag skilum af okkur fiskstofnunum í jafn góðu og jafnvel betra ástandi en þegar við fengum þá í hendurnar. Þetta er frumforsenda fyrir því að við getum selt afurðir okkar vottaðar á erlendum mörkuðum. Það er verið að brjóta þetta allt saman hér með þessu, allt saman. Þetta er ótrúlega óábyrgt skref sem verið er að taka hér í þessum málum og sérstaklega hvernig málið er unnið. Þetta er þingmannamál. Nefndarmenn meiri hlutans eru ekki einu sinni á málinu. Þetta mál er með hinum mestu ólíkindum og alvarleikinn (Forseti hringir.) er ekki síður í þeim skilaboðum sem verið er að senda þegar kemur að stjórnun á sjálfbærum og ábyrgum veiðum við Íslandsmið.