útlendingar.
Virðulegi forseti. Það áttu að vera tveir fundir í atvinnuveganefnd í þessari viku. Þeir féllu báðir niður. Af hverju var þá ekki hægt að halda þá og fara betur yfir þetta mál? Af hverju mátti þá ekki, í þessari viku til að mynda, fá þá aðila sem nefndarmenn hafa beðið um að komi fyrir nefndina, af hverju mátti þá ekki bara fá þá núna inn í umfjöllun um þetta mál? Málið er óafgreitt í nefndinni. Umsagnirnar sem fylgja þessu máli eru reyndar flestar gegn frumvarpinu. Kallar það ekki á frekari meðferð? Kallar það ekki á það að þeir aðilar sem nefndarmenn hafa beðið um að komi fyrir nefndina fái þá að koma fyrir nefndina?