útlendingar.
Frú forseti. Það væri mjög ánægjulegt ef hv. þingmenn myndu bara opna umræðuna og ræða þetta mál málefnalega. Ef hv. þingmenn hafa lesið frumvarpið þá er stór kafli, sem var settur inn frá því að fyrra frumvarp kom fram, einmitt um stjórnarskrárvarinn rétt og að aflaheimildir flokkuðust ekki undir það að þær væru eign heldur nýting. Við höfum svo hérna álit fyrrum hæstaréttardómara og dóma frá Hæstarétti um að aflaheimildir myndi ekki eignarrétt og það ætti hv. þingmaður sem er löglærður að vita.
Þessar fullyrðingar þeirra hv. þingmanna sem hafa ekki setið fundi atvinnuveganefndar, að það hafi ekki verið orðið við beiðnum um gesti, eru mjög ómálefnalegar. Það hefur verið orðið við þeirri beiðni um gesti sem óskað hefur verið eftir (JGunn: Þetta er rangt.) og ekki hefur hv. þm. Jón Gunnarsson …
(Forseti (ÞSv): Getur þingmaðurinn gefið ræðumanni hljóð? )
Ekki hefur hv. þingmaður …
(Forseti (ÞSv): Ef þingmaðurinn getur ekki gefið ræðumanni hljóð …)
(JGunn: … þá vísar hún honum úr salnum.)
(Forseti (ÞSv): … þá þarf forseti að vísa honum úr salnum.)
(JGunn: Já, já, þá gerir hún það. )
Þetta er sorglegt að heyra, að hv. þingmaður geti ekki verið málefnalegur í þessari umræðu. Hann hefði getað óskað eftir áliti ráðuneytisins, atvinnuvegaráðuneytisins, um þetta mál fyrir löngu eða beðið um að fá þetta mál á dagskrá, sem kom ekki beiðni til mín um.