útlendingar.
Virðulegur forseti. Það er enginn ágreiningur um það að veiðiheimildir eru ekki eign þess sem veiðir. (Gripið fram í: Segðu þetta aftur. )Það er enginn ágreiningur. Það hefur aldrei verið þannig að fiskurinn í sjónum sé eign þeirra sem veiða. Það breytir því ekki að þeir sem nýta og hafa fengið að nýta þetta lögum samkvæmt njóta réttinda sem eru varin af sömu stjórnarskrá. Það er það sem skiptir máli og menn gleyma því að þetta er ekki spurning um að eiga. Ég á engan fisk og ekki sá sem veiðir hann heldur. Þetta er spurningin um réttindi sem menn hafa fengið með lögum og þú sviptir þá ekki þeim réttindum bótalaust, sem ég held að þetta frumvarp sé að gera. Það er það sem skiptir máli í þessu og þess vegna er þetta vont frumvarp og vont fordæmi og það er ekki bara á ábyrgð Flokks fólksins ef þetta fer svona fram.