útlendingar.
Virðulegur forseti. Ég kem hérna upp undir fundarstjórn forseta og vil hrósa fundarstjórn forseta að því leyti að ég tel að fundarstjórn forseta hafi verið afar góð þegar kemur að því hvernig hún hefur sett upp dagskrá þingsins síðastliðnar vikur. Í gær fjölluðum við um öll þau mál sem voru komin út úr allsherjar- og menntamálanefnd, þingflokksformenn fengu upplýsingar í dag um að það myndi vera fjallað um öll þau mál sem væru komin út úr atvinnuveganefnd og þannig geta þingmenn skipulagt störf sín og verið mætt hér til leiks. Ég heyri á þessari umræðu undir fundarstjórn þar sem fólk er aðeins að fara í efni þessa máls að það er heilmikið að ræða í þessu máli og hlakka ég til að hlusta á þessar umræður, enda ekki fulltrúi í atvinnuveganefnd.
En mér þykir afar miður að hér komi þingmenn upp og boði það að vegna andstöðu sinnar við málið eða hvernig þau eru málefnalega á móti því ætli þau að koma í veg fyrir að málið komist á dagskrá og ætli jafnvel að stöðva mál, eins og hefur verið boðað úr þessum ræðustól, sem snýr að því að afturkalla alþjóðlega vernd þeirra sem brjóta af sér. Ég skil hreinlega ekki af hverju við getum ekki hleypt þessu máli á dagskrá og tekið þessa málefnalegu umræðu. Það er búið að senda út þau skilaboð að það sé hægt að taka málið aftur inn í nefnd milli 2. og 3. umræðu og fá þá gesti sem upp á vantar. Hleypið málinu endilega í málefnalega umræðu, það er um nóg að tala. Ég hlakka til að hlusta.