157. löggjafarþing — 64. fundur,  29. jan. 2026.

útlendingar.

112. mál
[16:01]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Mér fannst athyglisvert að hv. þm. Guðmundur Ari Sigurjónsson hefði í rauninni komist í gegnum þetta mál án þess að ræða það einu orði að stjórnarandstaðan væri að gera kröfu um að nefndarstörfin færu fram með skilvirkum hætti. Það hefur hér í umræðunni verið bent á ágalla á störfum nefndarinnar. Ég sat reyndar þann fund þegar hv. formanni atvinnuveganefndar var brigslað um að hafa logið að nefndarmönnum. (Gripið fram í: Hvaða formanni?) Sigurjóni Þórðarsyni. (Gripið fram í.)— Afsakaðu, frú forseti, fyrrverandi formanni atvinnuveganefndar, Sigurjóni Þórðarsyni. Hann gat ekki borið þetta af sér á þeim fundi og lýsti því yfir að það væri þá bara rétt að þingmenn færu með þetta hingað í sal, í pontu, fyrir framan alþjóð.