157. löggjafarþing — 64. fundur,  29. jan. 2026.

útlendingar.

112. mál
[16:02]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Það sem mér þykir athyglisvert í þessari umræðu er hversu mikil vanvirðing er fyrir forseta frá ákveðnum þingmönnum hérna. Svo er líka verið að brigsla fólki um lygar sem er ekki á staðnum vegna þess að það er í öðrum störfum erlendis og mér þykir það ekki við hæfi þegar fólk getur ekki varið sig. Í aðalatriðum snýst þetta bara um að stjórnarandstaðan er ekki sammála þessu máli. Þetta snýst um það og ekkert annað. Þeir eru bara að hengja sig í einhver smáatriði, einhver formsatriði og eitthvað til þess að geta tafið málið. Þetta snýst ekki um neitt annað en það. Mér finnst að það sé ástæða til þess að ræða þetta mál efnislega, á eðlilegan hátt. Málið sem kom kvótasetningu á var þingmannamál og það fór hérna í gegn með tiltölulega miklum hraða. Nú er komið þingmannamál sem tekur hana af og það er bara ekkert, ekki neitt, óeðlilegt við það.