útlendingar.
Frú forseti. Við hefjum þá aftur umræðu um frumvarp til laga um breytingu á lögum um útlendinga, afturköllun alþjóðlegrar verndar. Ég hafði hugsað mér að tala bara svolítið óformlega um þetta, ekki kannski fara ofan í ákvæði þessara laga heldur svona almennt um viðhorf til þessa málaflokks. Ég man t.d. að fyrir meira en 20 árum síðan þegar ég var lögreglustjóri þá fórum við í heimsókn til Danmerkur og Svíþjóðar. Við fórum reyndar einnig til Óslóar og ég spurði þessa ágætu viðmælendur mína á þessum lögreglustöðvum hvert væri helsta viðfangsefni þeirra. Þetta er svona rétt um aldamótin. Það kom mér svolítið á óvart á þeim tíma hvert svarið var og hversu afgerandi það var. Þeir sögðu: Helsta vandamál okkar er vandamál innflytjenda. Já, og hvert er þá svona næstmesta vandamálið, hvaða mál er þar á eftir? Það eru málefni innflytjenda. En hvert er þá hið þriðja í röðinni? Það eru málefni innflytjenda. Þetta kom mér á óvart á þessum tíma, að alls staðar á Norðurlöndunum væri þetta það mál sem var helsta viðfangsefni lögreglunnar á Norðurlöndunum og það eru meira en 20 ár síðan.
Síðan getum við farið aðeins framar í tíma og ef við förum til ársins 2007 þá er stofnuð greiningardeild við embætti ríkislögreglustjóra. Þeir gefa fljótlega út skýrslu, annaðhvort 2007 eða 2008, um horfur hvað varðar skipulagða glæpastarfsemi m.a., minnir mig að hafi verið, og benda á að þetta sé vaxandi ógn og að lögregla og stjórnvöld þurfi að taka mið af því að reyna að koma í veg fyrir að þessari brotastarfsemi vaxi ásmegin hér á landi. Síðan eru liðin næstum 20 ár, frú forseti. Þeir endurtaka leikinn, þ.e. greiningardeild ríkislögreglustjóra, 2015, 2017, 2019, 2021 og enn og aftur núna á síðasta ári, 2025. Í öllum þessum skýrslum, kannski mismikið eða af mismiklum þunga, jókst þunginn ár frá ári hvað varðar ábendingar um það að íslensk yfirvöld, löggæsluyfirvöld, yrðu að fara að taka markvisst á þessum vanda hvað varðar uppgang skipulagðra glæpahópa á Íslandi með, eins og oft var orðað, erlendum tengingum, þ.e. flestir þessir hópar voru með erlendar tengingar og jafnvel einungis erlendir en að öðru leyti með erlendar tengingar. Þetta voru hópar sem höfðu brotastarfsemi, og hafa, á ýmsum vettvangi, ekki bara t.d. innbrot eða þjófnað heldur ýmiss konar aðra alvarlegri starfsemi, þ.e. fíkniefnainnflutning, -sölu og -framleiðslu jafnvel og mansal og fleira og fleira. Það sem jókst einnig með vaxandi fjölda skýrslna voru ábendingar um að hér væru einnig komnir erlendir aðilar sem högnuðust á því að að ýta undir svik á opinberum kerfum, þ.e. væru hér með aðila á sínum vegum sem væru að misfara með íslenska velferðarkerfið, þ.e. bætur og annað slíkt. Þetta hefur verið ákall í núna bráðum tvo áratugi.
Viðbrögðin, frú forseti, af því að ég var nú og hef verið starfandi í þessum geira og fylgst aðeins með þessu, hafa nánast engin verið í raun og veru. Jú, jú, menn hafa endrum og eins fjölgað lögreglumönnum, breytt náminu, eflt námið, farið á ráðstefnur og nýir ráðherrar og yfirmenn hafa þurft að endurtaka þann leik að láta sannfærast um að þetta vandamál væri til staðar og væri alvarlegt. Þetta hefur allt tekið tíma og á meðan bíðum við. Það er það sama með þetta mál sem við erum að ræða hér, þ.e. útlendinga á Íslandi og hvenær eigi að veita vernd og hvenær eigi að afturkalla þessa vernd. Þetta er allt sama marki brennt. Menn framkvæma ekki. Þeir leggja ekki í að taka á málunum, alveg eins og með þetta mál, afturköllun alþjóðlegrar verndar sem búið er að veita vegna afbrota. Hver getur verið ósammála því, frú forseti, ef hingað kemur erlendur aðili sem æskir eftir alþjóðlegri vernd, hann kemur í gegnum innri landamærin — þessir aðilar koma allir í gegnum innri landamærin. Við erum ekki að fá aðila í gegnum ytri landamærin hingað inn til að óska eftir alþjóðlegri vernd heldur innri landamærin, þ.e. þeir koma langflestir, kannski ekki alveg allir en langflestir, frá Evrópulöndum, þ.e. þeir eru að komast inn á svæðið þaðan í gegn, þ.e. í gegnum suðurlandamæri Evrópu og handlanga sig svo með aðstoð þeirra sem þekkja best til norður eftir álfunni, til þeirra staða þar sem auðveldast er og hagkvæmast er að komast á velferðarkerfi oft á tíðum.
Ég spyr mig bara: Hver er tilgangurinn með kerfinu um alþjóðlega vernd? Er þetta tilgangurinn? Ég hef sjálfur unnið í þessu. Ég hef sjálfur verið þarna. Ég veit hvaða fólk þetta er. Þetta er auðvitað fólk sem er að ná sér í betri lífsskilyrði. Ég ætla ekki að fullyrða að það séu allir en langflest er þetta fólk sem er að reyna að komast og, eigum við ekki bara að tala íslensku, ná sér í aura. Þeir vita jafnvel að þeim verður frávísað en hanga samt hér eitt eða tvö ár af því að kerfið er svo seinvirkt og fara svo í burtu, er svo brottvísað, þeir vita það sjálfir, er brottvísað oft á tíðum með fullar hendur fjár, tala nú ekki um ef þeir einnig misnota kerfin enn frekar með því að vinna jafnvel svart og ná sér þannig í aukakrónur vegna þess að það er auðvitað mannlegt að ná sér í fjármuni, sérstaklega ef þeir eru boðnir og auðvelt að nálgast þá.
Hver er tilgangurinn með þessu kerfi? Að aðstoða fólk á flótta. Já. Hvað gerðum við hérna fyrir 20, 30 árum? Við íhuguðum vandlega hvaða 20–30 aðilum við ætluðum að bjóða hingað úr flóttamannabúðum, tókum þar fólk sem búið var að greina að þyrfti hjálpar við, væri sannarlega flóttamenn frá sínu landi og við tókum þá hingað og tókum vel á móti þeim, gáfum þeim húsnæði, kenndum þeim íslensku, sýndum þeim vinnumarkaðinn og þetta fólk samlagaðist og varð góðir og gildir samfélagsþegnar. Auðvitað á þetta að vera tilgangurinn. Þetta á ekki að vera einhvers konar spretthlaup í gegnum Evrópu til að komast til Íslands vegna þess að hér er best, hér drýpur smjörið hraðast. Auðvitað á það ekki að vera spretthlaup og við verðum að ná tökum á þessu.
Hæstv. dómsmálaráðherra talar eins og hún sé að fara að taka til hendinni, leggur fram þessi frumvörp sem okkur í Miðflokknum finnst auðvitað ekki ganga nógu langt. Ég vil bara minna á að á síðasta kjörtímabili, þótt ég hafi ekki verið hér, þá hlustaði ég stundum á umræður, og umræður hv. þingmanna Viðreisnar, tala nú ekki um hv. þingmanna Samfylkingar, voru nú ekki þess eðlis að maður treysti því að þau hafi snúið við blaðinu á einni nóttu. Þær voru ekki þess eðlis. Ég gæti einhvern tíma þegar gott tækifæri býðst rifjað upp sumar þessar ræður. Sumir þessara hv. þingmanna eiga hér enn sæti á þingi og börðust um á hæl og hnakka í þessari pontu gegn því að það yrði eitthvað reynt að stemma stigu við stjórnlausu flæði hælisleitenda til Íslands á þessu tímabili.
Ég byrjaði mína ræðu á því að rifja aðeins upp reynslu mína úr lögreglunni þar sem ég horfði á þetta auðvitað mestmegnis sem áhorfandi. Ég var ekki í miðju þessu ati hvað varðar afbrot þessara aðila en auðvitað finnst mér að þeir sem hingað koma og biðja góðfúslega um hæli vegna þess að þeir eru á flótta eigi að virða landsins lög. Að sjálfsögðu, frú forseti. Auðvitað eiga þeir að virða landsins lög. Við erum að rífast hér um einhver lagatæknileg atriði, hvort þetta séu ítrekuð afbrot, alvarleg afbrot, morð eða eitthvað slíkt. Það er bara mín skoðun, frú forseti, að næstum öll afbrot eigi að verða þess valdandi að þessu fólki verði vísað hér af landi brott. Af hverju á öryggi borgaranna, íslenskra borgara, að vera í öðru sæti en mannréttindi afbrotamanna í fyrsta sæti, frú forseti? Öryggi borgaranna hér á landi á auðvitað að vera í fyrsta sæti. Mannréttindi afbrotamanna eiga að vera í öðru sæti. Lagatæknileg atriði hér sem við getum þvargað um og ég ber fulla virðingu fyrir — það verður að komast í gegnum þá flækju til þess að geta gert það sem við viljum að sé gert hér til að öryggi borgaranna sé í fyrsta sæti. Við eigum ekki að flækja okkur í því neti. Við eigum að komast í gegnum það, hvernig sem við förum að því. Öryggi borgaranna númer eitt, mannréttindi glæpamanna í öðru sæti, bara svo einfalt.
Hvað eru aðrar þjóðir að gera? Aðrar þjóðir eru í stórkostlegum vandræðum. Danir tala nú um hvernig þeir geti sundrað hliðarsamfélögum sem þar hafa myndast og eru talin mjög slæm fyrir danskt samfélag þar sem einhverjir hópar fólks, einhver þjóðarbrot, koma sér fyrir og hafa nánast sín eigin lög og rétt og aðlagast ekki og virða ekki dönsk lög og rétt eða danskar venjur eða aðlagast ekki dönsku samfélagi. Þeir eru í vandræðum með þetta í dag. Eigum við ekki að reyna að gera þetta núna áður en við reynum að bakka seinna meir? Við eigum að koma í veg fyrir þetta núna þannig að við þurfum ekki að berjast um á hæl og hnakka hér eftir 20 ár. Eru hliðarsamfélög byrjuð að myndast á Íslandi? Hvað getur íslenskt samfélag tekið á móti mörgum erlendum hælisleitendum hér, sérstaklega ef þeir eru kannski mjög ólíkir íslenskri menningu? Við erum 400.000. Danir eru, held ég, fimm milljónir, eitthvað slíkt, Svíar tíu milljónir og eru í stökustu vandræðum. Auðvitað eigum við að stjórna þessu sjálfir, frú forseti. Við eigum að stjórna þessu sjálf, eigum að ákveða þetta sjálf: Hvað getum við tekið á móti mörgum, hvað ætlum við að hjálpa mörgum og hvernig? Hvernig getum við aðlagað þá ef við viljum halda í íslenska menningu og íslenskt samfélag eins og við þekkjum það? Það er auðvitað sérstök ákvörðun. Ef menn vilja ekki að hér verði töluð enska eða einhver önnur tungumál eftir tíu ár eða 20 ár þá er það bara sérstök ákvörðun. En við erum ekki að ná markmiðum okkar eins og þetta er í dag. Við erum ekki að ná markmiðum okkar um að íslensk tunga geti í raun lifað í þessu samfélagi ef fjöldi útlendinga sem koma hingað verður með sama hætti og síðustu tíu árin. Það er augljóst. Viljum við það?
Ég ætla ekki að fara með þessa rullu sem flestir þingmenn hafa farið með hér um að auðvitað eru margir útlendingar ágætir, við vitum það. Við erum ekkert að tala um það. Það er hér aragrúi af fólki sem kemur til Íslands til að starfa hér og gengur bara ágætlega og samlagast íslensku samfélagi ágætlega. Mér er illa við að fara með þessa rullu en þessi fyrirvari virðist alltaf þurfa að vera í hverri einustu ræðu, annars er maður stimplaður um að maður sé á móti öllum útlendingum, sem ég er svo sannarlega ekki, þekki marga og hef haft samskipti við mjög marga í gegnum tíðina og unnið með þeim og hvaðeina. En þessi rulla verður víst að vera.
Hvað þarf að gera til að við komumst út úr þessu? Við þurfum að taka til hendinni. Eins og sumir ræðumenn hér í dag, og í gær einnig, hafa nefnt þá er mjög brýnt að við endurskrifum útlendingalögin frá grunni. Þau eru auðvitað flækt og flókin og tyrfin. Þessum lögum þarf að kasta og búa til einfaldari löggjöf í kringum þetta. Auðvitað eigum við að hjálpa fólki það sem við höfum mest getum og einbeita okkur að því að láta þá fjármuni — þetta eru milljarðar, frú forseti. Þetta eru tugir milljarða á ári sem fara í hælisleitendakerfið á Íslandi. Auðvitað eigum við að láta þessa aura vinna betur en að fara í að tefja hér einhverja málsmeðferð þar sem augljóst er að viðkomandi verður brottvísað fyrir rest.
Ég sé að tíminn flýgur. Ég ætlaði að tala um ýmislegt annað. Til marks um hve brotið kerfið er, frú forseti, er t.d. bara nýlegt dæmi um að við vorum svo bláeyg, alveg fram á þennan dag og erum enn jafnvel, að við tókum við fólki á flótta sem vildi sameinast fjölskyldum sínum og okkur var svo annt um að gera það að við tókum tugi einstaklinga undir 18 ára aldri sem voru ekki með nein blóðtengsl, frú forseti, við neinn hér á landi. Engin blóðtengsl, fjölskyldusameining, hversu vitlaust getur þetta verið, frú forseti? Og svona mætti lengi telja. Við erum með fjöldamarga aðila sem dvelja hér á kostnað íslenska ríkisins þótt það sé kominn friður í heimalandi þeirra og minntist ég á það í ræðu hér fyrir ekki löngu síðan að það væri kominn friður á í Sýrlandi þar sem einvaldurinn Assad væri sjálfur orðinn hælisleitandi í Moskvu, (Forseti hringir.) þannig að það væri kannski tími til kominn að þetta fólk færi heim og starfaði þar að uppbyggingu síns fyrra heimalands.