útlendingar.
Virðulegur forseti. Hér hefur undir þessum lið verið rædd dagskrá þessa þingfundar sem kveður á um að þingmannamál um grásleppu verði rætt hér við 2. umræðu. Það hefur verið rætt undir þessum lið og bent á það málefnalega, og færðar fram þær upplýsingar sem liggja fyrir, að hv. atvinnuveganefnd hafi ekki tekið beiðnum nefndarmanna í nefndinni um að fá tiltekna einstaklinga og forstöðumenn ríkisstofnana á fund nefndarinnar til að ræða málið. Það liggur t.d. fyrir í málinu að atvinnuvegaráðuneytið hafi ekki verið boðað á nefndarfund til að ræða málið við þinglega meðferð málsins. Það liggur alveg fyrir. Hér hafa hins vegar hv. þingmenn stjórnarmeirihlutans komið og fullyrt að svo sé ekki, eða að það hafi verið gert. Það var hins vegar ekki gert. (Forseti hringir.) Það liggur fyrir í málinu. Það var upplýst um þetta í síðustu viku, að atvinnuvegaráðuneytið hefði ekki fengið boð um að koma á nefndarfundinn. Þessi umræða er með miklum ólíkindum. Virðulegur forseti hefur nú ekki blanda sér mikið í þessa umræðu en ég biðla til forseta (Forseti hringir.) að forseti setji sig inn í málið og komi því til leiðar að þetta mál fari af dagskrá og inn til hv. atvinnuveganefndar (Forseti hringir.) til þeirrar þinglegu meðferðar sem málið á skilið.