157. löggjafarþing — 64. fundur,  29. jan. 2026.

útlendingar.

112. mál
[16:27]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Varðandi þetta grásleppumál hef ég reynt að halda því til haga, það liggi hér fyrir, að það varð grundvallarbreyting á umsögnum tiltekinna ríkisstofnana við meðferð málsins á síðasta þingi. Það liggur fyrir að forstöðumenn þessara stofnana komu á nefndarfundi og lýstu málinu sem algjörlega vanbúnu og ótæku til þess að fara hér í umræðu. Það liggur líka fyrir að þessir forstöðumenn hafa í raun fengið einhverjar ákúrur fyrir það og svo hafa borist í kjölfarið misvísandi umsagnir frá þessum ríkisstofnunum og þrátt fyrir að minni hluti nefndarinnar hafi óskað eftir því að þessir forstöðumenn kæmu aftur fyrir nefndina þá var því neitað.

Virðulegur forseti. Það liggur alveg fyrir að það þarf að greina þetta mál miklu frekar og kalla aftur fyrir nefndina þessa forstöðumenn sem hafa verið með málefnalegt innlegg í málinu og reyna að varpa ljósi á það af hverju ein ríkisstofnun getur verið missaga í umsögnum sínum um tiltekin þingmál.