157. löggjafarþing — 64. fundur,  29. jan. 2026.

útlendingar.

112. mál
[16:29]
Horfa

Brynjar Níelsson (S) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Ég á afskaplega erfitt með, komandi hér eftir langt hlé, að skilja það af hverju, úr því að svona er komið, að menn hafi ekki fengið þá gesti, og það eru ekki bara gestir úti í bæ heldur alvörugestir sem hafa eitthvert vit á málunum — að það skuli ekki vera hægt að fá þá fyrir nefndina og setja hér allt þingið í uppnám, í staðinn fyrir að kalla málið út aftur, leyfa þessu að fara fram og eiga samtal við þessa aðila og koma svo bara með málið aftur inn. Það er bara undarlegt að þetta skuli gerast með þessum hætti og setja með því öll störf þingsins í uppnám, sem mér skilst að hafi gengið vel í vetur, sem er að vísu nýmæli.