157. löggjafarþing — 64. fundur,  29. jan. 2026.

útlendingar.

112. mál
[16:30]
Horfa

Ingveldur Anna Sigurðardóttir (S) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Ég kem inn sem varaþingmaður þessa vikuna fyrir hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur. Hún situr í atvinnuveganefnd sem hefur ekkert fundað í þessari viku. Ekki einn fundur. Það hefur orðið fundarfall. Þetta grásleppumál var sett á óvænt dagskrá þingsins í dag, það kom í ljós í gær og er mjög skrýtið. Ráðherra hefur ekki komið og lýst sínum áhuga á þessu máli eða hvað henni finnst um þetta mál, sem ég tel að sé mjög mikilvægt að hún geri af því að hún er jú ráðherra þessa málaflokks.

Síðan eru einfaldlega bara fleiri aðkallandi mál sem bíða afgreiðslu þessa þings og að mínu mati eru kaffistofur landsins að kalla eftir því að verðbólga lækki og ríkisstjórn hæstv. forsætisráðherra Kristrúnar Frostadóttur taki mál til afgreiðslu hvað þau mál varðar, t.d. eins og að lækka vexti og verðbólgu og taka til heima hjá sér.