útlendingar.
Virðulegi forseti. Ég vil nú byrja á að leiðrétta hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur sem sagði að við hefðum stundum rétt fyrir okkur. Það er alrangt, við höfum alltaf rétt fyrir okkur. En ég vil byrja á að ræða aðeins þessa breytingartillögu mína af því að það hefur komið hérna fram í umræðunni að það hafi verið mat sérfræðinga sem komu fyrir nefndina að telja upp eins lítið af brotum og hægt er sem koma þarna til álita. Þessi tillaga gengur ekki lengra en svo að það er aðeins bætt inn tveimur ákvæðum sem geta átt við, þ.e. 232. gr. og 233. gr. Þær eru sérstaklega tilgreindar vegna þess að alla jafna teljast þessi brot ekki endilega stórvægileg en þau geta verið það og sérstaklega í kringum hópa. Ef menn mynda hópa í ólíkri menningu í ákveðinni hagsmunabaráttu getur stafað talsverð ógn af þeim gagnvart íslensku samfélagi. Það sem ég segi hérna í b-liðnum, ég er raunverulega að taka inn í þetta heimild til að afturkalla verndina ef þetta eru alvarleg og ítrekuð brot almennt. Það kannski dekkar þetta allt saman. Þá væri hægt að hafa hluta af þessu bara í greinargerð með frumvarpinu og tilgreina ákvæði sem væru líkleg þarna undir, án þess að þau séu tæmandi talin. Auðvitað verður þetta alltaf matskennt en þetta er ég að reikna með að sé heimilt að afturkalla en ekki skylda, eins og ég nefni með alvarlegustu brotin, þ.e. þau sem eru hættuleg öryggi ríkisins, mjög alvarleg brot og útlendingur telst því hættulegur samfélaginu og ógna allsherjarreglu og almannaöryggi.
Almannaöryggið er bara svo mikilvægt. Öryggi landsmanna, íbúa, er svo mikilvægt í þessu þannig að það var löngu orðið tímabært að ganga þessa leið sem þó er farin núna, að hægt sé að afturkalla vernd. Ég held að við verðum að vera mjög ákveðin í þessu og ganga mjög langt vegna þess að við tryggjum auðvitað ekki eftir á í þessu frekar en öðru. Vissulega geta komið upp einhverjar sérstakar kringumstæður sem verður þá að taka á sérstaklega en að almennt sé það þannig ef menn gerast brotlegir með þessum hætti að þeir missi þessa alþjóðlegu vernd.
Eins og komið hefur fram hérna í umræðunni er þetta bara lítill hluti af þeim vanda sem við erum að glíma við í heildardæminu. Menn hafa farið hérna um víðan völl í umræðunni en ég held að það sé bara ágætt að minna okkur á hvernig þetta gerðist í upphafi. Ég man þá tíð, og af því ég sé hv. þm. Grím Grímsson hérna þá man hann það örugglega líka, að útlendingaeftirlitið voru einn eða tveir menn uppi á lögreglustöð. Þar kom enginn inn í landið og sagði bara: Ég óska eftir hæli. Þeir voru umsvifalaust farnir upp í flugvél til baka, enda var litið svo á að sá sem kæmi hér með flugi úr Evrópu væri í eðli sínu ekki flóttamaður. Síðan kemur hér til umfjöllunar, og þá er ég á þingi en ekki hv. þm. Grímur Grímsson, að búa til ný útlendingalög og það var þverpólitísk samstaða um að reyna að búa til ný útlendingalög. Sjálfstæðisflokkurinn, sem hafði dómsmálaráðuneytið, gekk svo langt í því að stjórnarandstaðan hafði formennsku í þessari nefnd. Hún fer að vinna í þessu og þá komu auðvitað upp alls konar sjónarmið og það var reynt að plástra þannig að allir fengju eitthvað fyrir sinn snúð. Svo þegar þetta kemur hér til atkvæðagreiðslu 2017 var fullkomin samstaða um þetta frumvarp, nema hjá tveimur þingmönnum. Það vill svo til að ég var annar þeirra og ég sagði á þeim tíma: Hér er verið að opna pandórubox. Við munum að öllum líkindum og sennilega mjög fljótt missa stjórn á landamærunum. Þá varð ég fyrsti rasistinn á þinginu auðvitað en þá var umræðan þannig að menn voru í slíkum dyggðaskreytingum og í slíkri manngæsku og samkennd við heiminn að þeir hugsuðu ekkert lengra. Menn hugsuðu ekki hvaða afleiðingar það hefði að við myndum missa stjórn á landamærum. Þetta gerðist auðvitað strax. Þetta var strax orðið stórkostlegt vandamál 2018. Bara einu, tveimur árum eftir að lögin voru samþykkt var þetta orðið stórkostlegt vandamál. Meira að segja á þinginu 2017 þegar þetta var samþykkt voru margir skeptískir. Það var fullt af upplýsingum og við vorum vöruð við. Við vorum vöruð við því að ef við gengjum lengra í þessu og þetta væri auðveldara hér en annars staðar, meiri réttindi o.s.frv., þá myndum við ekki ráða við þetta. Við vorum vöruð við en það þorði enginn að segja neitt af því hann vildi ekki vera kallaður rasisti. Menn vissu þetta alveg. Ef ég man rétt voru meira að segja viðvaranir frá ríkislögreglustjóra, hv. þm. Grímur Grímsson man það kannski betur en ef ég man rétt komu líka aðvaranir þaðan.
Enginn þorði að gera neitt. Enginn þorði að gera neitt almennilega en svo þegar vandinn var kominn upp, af því að meiri hluti þingsins vildi þetta, hvaða afleiðingar hafði það? Þetta var ekki bara spurning um þessa 10–20 milljarða á ári í beinhörðum peningum sem þetta kostaði, þessi vandi, heldur hafði þetta alveg gífurleg áhrif á heilbrigðiskerfið, skólakerfið, félagsþjónustuna og sveitarfélögin. Sveitarfélögin hérna í kringum Reykjavík voru að kikna undan þessu þannig að þau réðu ekki einu sinni við að sinna lögbundinni starfsemi sinni, lögbundnum verkefnum. En Reykjavíkurborg tók auðvitað þátt í þessu öllu saman og gerði kannski enn betur. Menn neituðu algjörlega að horfast í augu við raunveruleikann og hefur í raun og veru ekki tekist það almennilega enn þá. Það var ekki fyrr en að almenningur steig upp að flokkar sem höfðu barist á móti öllum breytingum og öllum lagfæringum sáu sæng sína upp reidda og þorðu ekki annað en að segja: Heyrðu, jú, við verðum að gera eitthvað.
Þetta frumvarp er eitt af því og gott og vel. Það er gott svo langt sem það nær en auðvitað þurfum við að gera miklu betur, hvort sem okkur líkar betur eða verr. Það getur engin þjóð kallað sig sjálfstæða og fullvalda nema hafa stjórn á landamærunum. Það er ekki hægt. Góðmennska og manngæska toppar það ekkert. Það er eins og við munum ekki í hvers umboði við vinnum hér. Við erum í umboði íbúa þessa lands, þessarar þjóðar, og við verðum að bera ábyrgð á velferð og öryggi þessarar þjóðar og íbúa þessa lands. Við getum bara ekki verið ábyrgðarlaus og sagt: Bíddu, þetta er spurning um mannúð. Það er það ekki nema að hluta til. Auðvitað verðum við að vera hluti af vandanum og bera okkar skyldur en það að hafa þannig kerfi fyrir svona litla þjóð að við þurfum að útvega hverjum þeim sem lendir hér á flugvelli íbúð, framfærslu, alla þjónustu o.s.frv., er ekki hægt. Þetta er ekki hægt og það máttu menn alveg vita fyrir fram að væri ekki hægt. En menn horfðust ekki í augu við þetta, því miður. Svo erum við að reyna að vinda ofan af þessu núna, búin að stórskaða öll kerfin okkar. — Ég er ekki hálfnaður, herra forseti, þú verður bara að skrá mig aftur.
(Forseti (HildS): Herra forseti gerir það.)