útlendingar.
Frú forseti. Ég er alveg sammála hv. þm. Brynjari Níelssyni um það að menn máttu sannarlega vita betur. En það virðist reynast mjög erfitt að læra af reynslu, sérstaklega annarra, og hv. þingmaður hefur rakið hér viðvaranir nágranna okkar og frænda á Norðurlöndum sem hafa fram að þessu verið að engu hafðar. En telur hv. þingmaður að það frumvarp sem við ræðum hér sé á einhvern hátt til marks um að menn séu að átta sig á stöðunni og læra af reynslunni? Eins og hv. þingmaður benti á í andsvörum við mig áðan þá er þetta frumvarp til komið ekki hvað síst með vísan í að Evrópusambandið hafi áhyggjur af því hvernig málum sé hagað hér. Þar á bæ hafa menn tekið ákvörðun síðastliðið sumar um ákveðnar ráðstafanir í þessum efnum og þar af leiðandi telur hæstv. dómsmálaráðherra og ríkisstjórn Íslands tilefni til þess að við gerum ráðstafanir í samræmi við það. Með öðrum orðum, frú forseti: Dugar þetta frumvarp að mati hv. þingmanns sem þótt ekki væri nema vísbending um að stjórnvöld hafi gert sér grein fyrir ástandinu, gert sér grein fyrir því við hvað væri að eiga umfang og eðli vandans og séu tilbúin til að bregðast við í samræmi við það?
Það sem ég óttast nefnilega, hv. þingmaður kann að vera ósammála mér, hann segir frá því, er að þetta frumvarp sé ekki vísbending um slíkt heldur sé það jafnvel þvert á móti til komið vegna ákvörðunar hjá Evrópusambandinu síðastliðið sumar og um leið kynnt svona sem vísbending um að íslensk stjórnvöld séu eitthvað að huga að þessum málum en eigi ekkert að vera meira en það.