157. löggjafarþing — 64. fundur,  29. jan. 2026.

útlendingar.

112. mál
[16:56]
Horfa

Brynjar Níelsson (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka þessa þetta andsvar og þessa spurningu. Takk fyrir að hafa svarað henni fyrir mig líka. Ég held að það sé alveg rétt, ég held að sé mjög takmarkaður hugur sem fylgi máli í þessu. Ég óttast það og ég óttast að það sé raunverulega enginn vilji til að taka þær ákvarðanir sem þarf að taka. Þetta kemur auðvitað að utan. Þetta er raunveruleg krafa að utan og hefði hún ekki komið þá hefði þessari ríkisstjórn aldrei dottið þetta í hug, ég er nokkuð viss um það. Þessi krafa er svolítið gömul. Ef ég man rétt, þegar við Jón vorum í dómsmálaráðuneytinu saman, þá hafi Schengen-samstarfið verið byrjað að atast í okkur: Þið eruð ekki að standa ykkur, þið eruð búnir að veita fólki vernd sem hefur framið alvarleg brot og þau eru núna í borgunum okkar. Það er alveg óviðunandi. Þið verðið að bregðast við þessu. Enda vorum við þá þeir einu sem ekki gátu afturkallað þetta. Þannig að þetta er ekki alveg nýtt. En síðan kemur þessi reglugerð síðasta sumar frá Evrópusambandinu og þá er farið í þetta. Ég skal alveg vera hreinskilinn með það að ég hef enga trú á því að þessi ríkisstjórn, miðað við hvernig menn hafa talað áður, og svo sem enn í dag víða, um þessi mál, muni taka á raunverulegum vanda. Menn voru svo fegnir að vandinn er minni núna en hann var 2023, þá þurfum við ekkert að gera. Það er alveg sama álagið á öllum okkar kerfum; heilbrigðiskerfinu, menntakerfinu sem molnar smátt og smátt undan. Það gerist ekki á einni nóttu en smátt og smátt.