157. löggjafarþing — 64. fundur,  29. jan. 2026.

útlendingar.

112. mál
[16:58]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Hv. þingmaður kom þarna í lokin inn á atriði sem ég ætlaði reyndar ekki að spyrja um. En ég stenst ekki mátið af því að þetta er eitt af mörgum áhyggjuefnum mínum við þetta mál og umræðu um þessi mál almennt; þessar fullyrðingar um að við þurfum ekki lengur að hafa áhyggjur af því að það hafi heldur dregið úr flæðinu. Þetta minnir mig á mann sem er fastur í steypustígvélum í sundlaug og yfirborð vatnsins er alltaf að hækka. Og svo er það komið upp undir höku og hann hefur engar áhyggjur af því að vatnið hækkaði miklu hraðar hérna áður, í gær. Það sé ekki að hækka eins hratt núna. Þetta er náttúrlega alveg fráleit röksemdafærsla, að það að 1.900 manns komi til landsins, bara sem hælisleitendur, svo ekki sé minnst á allt hitt sem er misnotað í þessu kerfi, sé ekki áhyggjuefni af því að fyrir tveimur eða þremur árum voru það 4.500. Hvað ef það hefðu verið 10.000 fyrir þremur árum og núna bara 4.500? Ættum við þá ekki að hafa neinar áhyggjur? Þetta er algjör fásinna og til marks um það hversu lítið er um alvöruröksemdafærslur í umræðu um þessi mál.

En ástæðan fyrir því að ég kom upp aftur, ég hafði svo sem gert ráð fyrir því að koma í seinna andsvar hvort eð er, er að ég ætlaði einkum að vísa til þess sem hv. þingmaður nefndi um Schengen-samstarfið. Það var umdeilt á sínum tíma og er raunar enn umdeilt hvort það þjóni hagsmunum Íslands að vera þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Við vorum, ef ég man rétt, eina eyjan á sínum tíma sem tók þátt í því samstarfi, jafnvel þótt ýmis eyríki hafi tilheyrt Evrópusambandinu þá þegar. Sumir töldu þetta nauðsynlegt til að við fengjum greiðari aðgang að upplýsingum frá lögregluyfirvöldum annars staðar. Látum það liggja á milli hluta í bili. En er það ekki í rauninni bara niðurlægjandi fyrir Ísland að við séum allt í einu orðin veiki hlekkurinn í þessu Schengen-samstarfi sem er búið að vera í fullkomnu uppnámi við allt Miðjarðarhaf, í Bretlandi, á Spáni, að nú skuli ástandið orðið það slæmt, frú forseti, að við séum orðin veiki hlekkurinn?