157. löggjafarþing — 64. fundur,  29. jan. 2026.

útlendingar.

112. mál
[17:01]
Horfa

Brynjar Níelsson (S) (andsvar):

Það vill svo til að við erum búin að vera veiki hlekkurinn lengi og það er ákveðin niðurlæging í því. Þetta Schengen-samstarf, eins og flest svona samstarf, hefur vissulega kosti og galla. Schengen-samstarfið hefur einn stóran galla, marga svona sæmilega góða kosti en einn stóran galla: Þú hefur ekki sömu stjórn á landamærunum og áður, kannski eins og þú vilt. Við þurfum bara að meta það í heild sinni hvað er best að gera í því. Hvað eigum við að gera í því? En stóra vandamálið í öllum þessum málaflokki er bara það að íslenskir stjórnmálamenn, eða of margir þeirra, hafa ekki treyst sér, sennilega af pólitískum ástæðum, til að horfast í augu við raunveruleikann sem hefur verið þessari þjóð mjög dýrkeypt. Þegar þú eyðir tugum milljarða á ári þá er minna í innviðauppbyggingu, þá er minna að bæta í þessu og bæta í hinu vegna þess að við höfum svo mikla mannúð og mikla samkennd. Þetta er ekki forgangsatriði íslenskra stjórnmálamanna. Það er að gæta hagsmuna íbúa þessa lands og við gerum það ekki ef við getum ekki horfst í augu við raunveruleikann. Það munum við aldrei geta. Þetta á ekki að þurfa að segja nokkrum manni en kjarkurinn í íslenskum stjórnmálamönnum hefur ekki verið meiri en þessi í mörg, mörg ár. Ég bara vona að hann batni en ég er ekki viss um að það gerist með þessari ríkisstjórn, því miður.