útlendingar.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Brynjari Níelssyni fyrir ræðu hans og það er gaman að geta tekið samtalið við hann hér. En mig langar í upphafi að nefna það sem hefur komið fram í máli, að mig minnir, hv. þm. Bryndísar Haraldsdóttur, um að frumvarp sem þetta hafi verið í smíðum í dómsmálaráðuneytinu í tíð Guðrúnar Hafsteinsdóttur, fyrrverandi hæstv. dómsmálaráðherra, núverandi hv. þingmanns og formanns Sjálfstæðisflokksins. Ég get nú varla trúað því að það sé afstaða hv. þingmanns að hún hafi gengið erinda Evrópusambandsins í sinni ráðherratíð. Það væri kannski ágætt að fá afstöðu þingmannsins til þess.
En síðan er það hugtak sem er oft notað og hv. þingmaður notaði í sinni ræðu, þ.e. stjórn á landamærunum og að við þurfum að ná tökum á stjórn á landamærunum. Ég verð að viðurkenna að ég veit ekkert hvað það þýðir að hafa ekki stjórn á landamærunum. Við erum hér að ræða frumvarp sem varðar tiltekin atriði til að bæta lög um útlendinga að einhverju leyti og þegar við förum að tala um að ná stjórn á landamærunum — hvað er það? Mig langar að biðja hv. þingmann að fara aðeins yfir það með mér hvernig það lýsir sér að við höfum ekki stjórn á landamærunum.