útlendingar.
Virðulegi forseti. Til að hafa stjórn á landamærunum þá getum við ekki haft það þannig að hver einasti maður sem kemst í Keflavík eða á Seyðisfjörð geti komið inn í landið, hver einasti maður, við vitum ekkert um hann, geti komið hér inn, óskað eftir alþjóðlegri vernd. Við tökum á móti honum, útvegum húsnæði, útvegum framfærslu, útvegum þjónustu. Svo veit ég ekki hvar hann er ef beiðninni er hafnað, við finnum hann ekki, vitum ekki einu sinni hvar hann er. Í slíku umhverfi hefur þú ekki stjórn á landamærunum. Þú veist ekkert um þetta fólk, það er jafnvel ekki með vegabréf. Þú veist ekki hvað það heitir, en það gengur laust hér um allt land.
Vissulega er rétt að þetta frumvarp var undirbúið í tíð hv. þm. Guðrúnar Hafsteinsdóttur þegar hún var dómsmálaráðherra. Hún var ekki að ganga erinda ESB. Hún var að verða við kröfu samstarfsríkjanna í Schengen sem voru að skamma okkur fyrir að við værum búin að hleypa inn í landið alls konar misindismönnum sem væru að skoppa um alla Evrópu. Það held ég að hafi verið ástæðan fyrir því að Guðrún fór í þetta, ekki í ESB — ef þetta svarar einhverju.