157. löggjafarþing — 64. fundur,  29. jan. 2026.

útlendingar.

112. mál
[17:06]
Horfa

Grímur Grímsson (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Brynjari Níelssyni fyrir svarið við andsvari mínu. Ég ætla nú ekki að elta áfram ólar við þessa frumvarpssmíð, að frumkvæði hvers hún hafi verið, það svo sem skiptir ekki öllu máli. Mér finnst það alla vega vera þannig að þótt það verði stjórnarskipti þá blasi við að það sé ákveðin vinna í ráðuneytum sem þurfi að halda áfram og þá skipti engu máli hvort það sé verið að breyta um ráðherra. Þannig sé bara stjórnsýslan, hún þurfi að hafa sinn gang.

Varðandi stjórn á landamærunum þá er það auðvitað þannig að hingað kemur fólk sem við vitum ekki hvert er. Ef það er fólk sem kemur hér og sækir um alþjóðlega vernd og getur ekki sannað deili á sér þá er það hluti af vinnslunni við hælisumsóknina, þ.e. að reyna að átta sig á því hver viðkomandi er. Nota bene, hv. þingmaður talaði um að sumt af þessu fólki sem kæmi, af því að við hefðum ekki betri stjórn á því hvar það er, misstum við út um hvippinn og hvappinn, jafnvel í önnur Schengen-ríki. Það er náttúrlega vandinn við að vera í samstarfi sem hefur bæði kosti og galla eins og Schengen-samstarfið, það er vandamál þegar við erum ekki með innri landamæragæslu. Við ákváðum, þegar við tókum það upp upp úr aldamótum, að vera í Schengen-samstarfinu, að leggja niður landamæragæslu á innri landamærum með þeim göllum sem það hefur. En fyrst og fremst var það vegna kostanna sem voru væntanlega minni viðskiptakostnaður og hvaðeina. Það var samþykkt hér í haust frumvarp sem gerði það að verkum að öll flugfélög þurfa nú að skila til okkar farþegalistum og þessir farþegalistar leggja lóð á vogarskálar þess að við vitum hverjir koma.