útlendingar.
Virðulegi forseti. Já, þetta er allt hárrétt. En það sem ég er að segja, og eins og ég sagði í andsvari áðan — bara með því að vera í Schengen, þá höfum við ekki alveg jafn mikla stjórn á landamærum og við gerðum áður. Þegar ég tala um í dag að við höfum haft mjög takmarkaða stjórn á landamærunum er það vegna þess að í raun og veru hver sem er sem getur lent kemst inn í landið. Það kalla ég ekki að hafa stjórn á landamærunum. Það er stóri vandinn okkar. Við tökum líka þær skyldur á okkur að sjá um framfærslu og þjónustu og alls konar. Fyrir fámenna þjóð með veikara kerfi, veikari stjórnsýslu og viðkvæmari kerfi skapar þetta óendanlega mikinn vanda eins og þetta hefur gert.
Stjórnmálamenn verða að hafa kjark til að horfast í augu við þann veruleika og bregðast við honum. Þetta frumvarp er gott skref í þá átt. Þess vegna vil ég hrósa stjórnarmeirihlutanum fyrir það. Það eina sem ég er að leggja til er að við gerum það aðeins betra. Ræðum það. Kannski getum við komist að niðurstöðu um það. Ég jafnvel trúi því að þó ekki væri nema bara að hafa skyldu varðandi alvarlegustu brotin, þá er ég bara mjög sáttur og segi: Ókei, við erum að ná einhverjum árangri, við getum talað saman. Ég átti fína umræðu við formann allsherjar- og menntamálanefndar og við hv. þm. Grím Grímsson. Við getum alveg rætt þetta. Við þurfum ekkert að fara í skotgrafir þó að ég sé að skammast yfir fortíðinni og því hvað við vorum öll sofandi og vitlaus, sem við sannarlega vorum. Við erum að bíta úr nálinni með það. Við verðum að þora. Það skiptir máli hvernig við gerum þetta, hvernig við tölum, (Forseti hringir.) alveg óþarfi að hræða fólk. Tölum skynsamlega.