útlendingar.
Frú forseti. Ég tel mjög mikilvægt að ræða þessi útlendingamál og ástandið í þeim efnum til hlítar og set ekki út á það að gefinn sé góður tími til þess hér í þinginu í dag. Það mætti reyndar nýta fleiri daga í þessa mikilvægu umræðu. Auk þess held ég að það sé tilefni til að hæstv. forseti og þeir sem skipuleggja hér dagskrá þingsins gefi sérstakt svigrúm til að ræða stöðu mála í efnahagsmálum á Íslandi sem er ekki síður aðkallandi en það mál sem við ræðum hér. Þau eru bæði mjög aðkallandi, gætu ekki verið meira aðkallandi.
Ég hef tekið eftir því, frú forseti, að einhverjir þingmenn hafa hér verið að leggja til að í stað þess að ræða þessi stóru mál þá ræðum við um grásleppu. Eftir því sem ég kemst næst er það mál ekki einu sinni tilbúið til umræðu hér í þingsal. Þannig að þessi athugasemd mín við fundarstjórn forseta er kannski fyrst og fremst fyrirspurn til hæstv. forseta: Út á hvað gengur þetta hjá þeim hv. þingmönnum sem vilja hætta að ræða þessi stóru mál og fara frekar að ræða grásleppuna? Hvers vegna vilja þeir gera það núna ef málið er ekki einu sinni tilbúið?