157. löggjafarþing — 64. fundur,  29. jan. 2026.

útlendingar.

112. mál
[17:12]
Horfa

Eiríkur S. Svavarsson (M) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég kem hér undir umfjöllun um fundarsköp forseta. Ég vil benda á, út af þessu grásleppufrumvarpi, að hann er algerlega óskiljanlegur sá forgangur sem það mál er að fá hér í meðförum þingsins. Ég vil líka benda á að það bárust 29 umsagnir við það frumvarp til atvinnuveganefndar. Það eru einungis tíu aðilar af þeim sem hafa skilað inn umsögnum um málið sem hafa komið fyrir nefndina. Þegar umsagnir eru rýndar þá voru fimm af 29 umsögnum um þetta mál fylgjandi frumvarpinu. Það eru 24 umsagnir sem eru annaðhvort á móti þessu frumvarpi eða rökstyðja það með öðrum hætti. Það er augljóst að þetta mál þarf miklu frekari umfjöllun í nefndinni.